Kornfleks á rafmæli, til hamingju kæri bróðir! Því miður get ég ekki dregið fram nein gullkorn í tilefni dagsins því að þau eru öll geymd á forboðna svæðinu. En þau voru mörg alveg mögnuð...
Eldri rafmæliskveðjuþráður er til og var honum lokað til að hindra rugling. Hann er að finna hjer:
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=4779
- Gæzlan
Hammó!
Hver er Kornfleks? Klórar sér í höfðinu Til hamingju annars.
Kæri Kornflex (og fólk spyr hver er það)....ekki taka það nærri þér kæri vinur. Til hamingju með rafmælið þitt.
Jah... Kornfleks er ekki mikið eldri en ég, svo hann virðist hafa gufað upp áður en eða um það bil að ég kom í þennan heim. Svo ég hef fullan rétt á að furða mig á þessari persónu.
Komdu annars sæll Heiðglyrnir!

.
Þetta var mikið grín kæra Hexia...hef ekki hugmynd um hver þetta er...tí..tí. Já og komdu sjálf fagnandi Hexia mín.
Fyrirgefðu Heiðglyrnir minn, gríntannhjólin mín eru enn ansi ryðguð eftir þetta langa sumarfrí. Eða kannski datt aðal-gríntannhjólið út. Gramsar í handtöskunni Ég sé það allavega ekki hérna...
Fyrirgefðu Heiðglyrnir minn, gríntannhjólin mín eru enn ansi ryðguð eftir þetta langa sumarfrí. Eða kannski datt aðal-gríntannhjólið út. Gramsar í handtöskunni Ég sé það allavega ekki hérna...
.
Þetta gerist þegar Lúturinn lokar svona lengi. Sendir Hexiu nýtt gríntannhjól m/innbyggðri skemmtilegu frá Mallorca í DHL..Svona nú reddast þetta allt-saman Hexia mín.
Hann Júlíus prófeti á víst þriggja ára rafmæli í dag. Til lukku með það, hver sem þú ert. xT
Júlíus próféti er sko geðveikislega geðveikt geðveikur gaur! Og hann fær því geðveikislega geðveikt geðveikar rafmælisóskir í tilefni dagsins.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að fyrstu rafmæliskveðju vora eftir sumarlokun fær hinn tiltölulega sjaldsjeði Júlíus prófeti. Skál !
Til hamingju með Rafmælið Júlíus.xT
Ég heimta að fá líka Rafmæliskveðjur, þarsem ég varð einsárs þann 30 ágúst.
Aðeins örfáum augnablikum frá opnun Baggalúts.
Kæri Hvæsi !
Brjálaði briti og eiturbrasari, pulsugerðarmaður og pizzu bakari Baggalútíu. Innilega til hamingju með rafmælið hvenær fáum við að sjá þig í gerfi nakna kokksins?
Til hamingju með rafmælið, Litla Rassgat. Nú áttu bara nokkur ár enn í að verða stórt rassgat.
Gefur LR aukaskammt af kjarnafóðri
Til hamingju með rafmælið Litla rassgat! gefur rassgatinu g-streng og knúsar það svolítið
Og síðbúnar, pantaðar rafmæliskveðjur til Hvæsa líka! gefur helvítis kokknum eitthvað flott helvítis kokkadót og knúsar hann svolítið
Kæri Hvæsi !
Brjálaði briti og eiturbrasari, pulsugerðarmaður og pizzu bakari Baggalútíu. Innilega til hamingju með rafmælið hvenær fáum við að sjá þig í gerfi nakna kokksins?
Fer úr öllu og æfir þyrluna
Takk þið.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Óska rafmælisbörnum dagsins til hamingju með daginn.
Ég vil óska Galdrameistaranum hjartanlega til hamingju með rafmælið!