Hann ók Borgarstjóra Reykvíkinga í hinni árlegu gleðigöngu þetta árið! Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ný síða.
í kynningu útgefanda á bókinni Hamingjusami maðurinn og vörubíllinn hans, sem er 51. bókin í hinni þekktu ritröð Skemmtilegu smábarnabækurna, segir: Sagan sýnir okkur hvernig lífsglaður og hamingjusamur maður getur, með litlu viðviki, glatt samferðamenn sína .
Vakti hann börnin svo þau kæmust í skólann með bílflautunni og keyrði þau svo og leyfði þeim ð nota pallinn sem rennibraut í frímínútunum?
Það eru engin börn í sögunni.
Já, nú sé ég að þetta er svín, en ekki krakki, þarna á pallinum.
Hann gerði dýrin hamingjusöm með því að fara með þau í ökuferð?
Veifaði hann til dýranna?
Já, nú sé ég að þetta er svín, en ekki krakki, þarna á pallinum.
Hann gerði dýrin hamingjusöm með því að fara með þau í ökuferð?
Já og svo gerði hann eitt enn til að gleðja þau og hvað var það?
Sá sem svarar því fær réttinn - er er orðinn löngu hundleiður á að vakta þessa asnalegu spurningu.
Leifði þeim að renna sér á pallinum þegar foreldrarnir voru "úti" í heróinvímu ?
Bóndi var í heróínvímu og gleymdi að sækja kýrnar í morgunmjaltir. Bílstjórinn tók öll dýrin upp á pallinn, ók þeim heim að bænum og flautaði þartil bóndinn vaknaði.
Hann keyrði svínin í sláturhúsið þaðan sem þau fóru til himna?
ætli hann hafi ekki upplýst þau um fengitímann.
Leifði þeim að renna sér á pallinum þegar foreldrarnir voru "úti" í heróinvímu ?
Þetta er rétt og rúmlega það. Hvæsidillumeistarinn á leik.
Hvar var pestó fundið upp, (nákvæmt svar óskast um hrepp, bæ og land ) hvað er það kallað á frummálinu og hvernig er það helst notað ?
Pestó var fyrir tilviljun fundið upp af alkemistanum Dimitri Shittov árið 1481 í borginni Buda, sem seinna varð sameinuð borginni Pest og ber nú nafnið Búdapest. Búdapest er í hreppnum Ungverjalandi innan baggalútísku landamæranna. Á frummálinu er pestó kallað búdó, en Pest-verjar eignuðu sér einkaleyfið eftir grimmilega yfirtöku á Búdó-afurðinni á nítjándu öld og seldu enskum landkönnuðum sem áttu svo seinna eftir að gera nafnið pestó alþjóðlegt, í staðinn fyrir hið upprunalega búdó.Pestó er aðallega notað sem fóður fyrir ali-plebba.
Helst er það nú notað sem sleipiefni.
Pesto alla Genovese stendur utan á krukkunni minni, svo ég gizka á það hafi verið fundið upp í Genoa , sem er í Lígúríuhéraði á Ítalíu. Er það ekki oftast bara notað út á pasta?