Ég er orðinn alltof fullur
ætla að leggja mig
áður þá mig berja bullur
sem brýtur mig á slig.
Virkur dagur, vinna hefst,
verkin þurfa framgang.
Virkur dagur vinnu hefst
verkin þurfa framgang.
Samstarfs hún við kjána krefst
Kvöl að hafa samgang.
Velkomnir þeir eru allir
sem yrkja vísur hér.
Velkomnir þeir eru allir
sem yrkja vísur hér.
Einnig þeir sem eru hallir
undir ljóðager.
Hef ég ekki fiman fót,
fer ég varla á gólfið.
Hef ég ekki fiman gót
fer ég varla á gólfið.
Konan sem tók mér á mót.
mælti: Far í hólfið.
Ég get um það talað trútt.
Tuða ég því mikið.
Ég get um það talað trútt.
Tuða ég því mikið.
Forsetinn er fallegt krútt.
sem felur á sér spikið.
Verðlagið nú hækkar hratt
en hrapið verður stærra.
Verðlagið nú hækkar hratt
en hrapið verður stærra.
Fínan þá ég fæ mér hatt
sem frama lyftir hærra.
Varla er gott að vinna með
vænisjúku fólki.
Varla er gott að vinna með
vænisjúku fólki.
Dágott er að drepa peð
með digrum byssuhólki.
Í Merardölum gýs nú gos
glóir þar nú hraunið..
Í Merardölum gýs nú gos
glóir þar nú hraunið..
Á ferðamenn þá færist bros
en fá þó sumir kaunið.
Flugvöllinn í Hvassahraun
heimta sumir enn.
Flugvöllinn í Hvassahraun
heimtar sumir enn.
Þar finn af gosi daufan daun.
Draga af lærdóm þessir menn?
Ég er að mála mynd af þér.
mun eg hana dýrt þér selja.
Ég er að mála mynd af þér.
mun eg hana dýrt þér selja.
Í afdrátt ég þá eflaust fer,
ey kann dýrara að velja.
Ég festist hvorki á filmu né
fæ mig séð í spegli.
Ég festist hvorki á filmu né
fæ mig séð í spegli.
En stundum þína sálu sé
svífa á rauðum dregli.
Nappaði í æsku nammi úr sjoppum.
Núna eg meira stel úr búðum
Nappaði í æsku nammi úr sjoppum.
Núna eg meira stel úr búðum.
Svo inni á Hrauni helli úr koppum,
ég hirtingu vill ey frá dæmdum lúðum.
Uppstúf hef ég heyrt að sé
höfð í öllum kynjum.
Uppstúf hef ég heyrt að sé
höfðu í öllum kynjum
Haft er uppi háð og spé
ef hætti þessa ei skynjum.
Bagglútinn bilaðann
bágt finnst mér að nota.
Baggalútinn bilaðann
bágt finnst mér að nota.
Skelfing vel ég skil að hann
skelli í lás við blota.
Á að rigna í allan dag,
ekki samt við drukknum.
Á að rigna í allan dag
ekki samt við drukknum.
Um það saman bögglum brag
Bæta mun það andans hag.
Syng ég æ um sólarlag
sumarbragi mína.
Syng ég æ um sólarlag
sumarbragi mína.
Um það hugsa í allan dag
að yrkja nýja, fína.
Í andarslitrum eldgosið
er víst þennan daginn.
Í andarslitrum eldgosið
er víst þennan daginn
Ekki er á allt kosið
þó ekki sé það frosið
Það rættist rigningarspáin.
Rosalega er ég blautur.
Það rættist rigningarspáin.
Rosalega er ég blautur.
Uppfull nú önnur táin
og ekki er það mjólkurgrautur.
Fiman hef ég fót og því
fer ég oft í dansinn.