Úr mínum penna ljóðin leka
leirug mjög og ekki góð.
Ef ég fyndi aðra seka
um þau brot, þá hýrnar þjóð.
Nefið mitt er nokkuð langt
og nær víst út að Leyti.
Nefið mitt er nógu langt
og nær víst út að Leyti.
Ýmislegt ég réði rangt
þó ráðastétt því neiti.
Skemmtin kvæði skapar þú.
Skal ég æ það lofa.
Skemmtin kvæði skapar þú.
Skal ég æ það lofa.
Á því hef ég alla trú
að í þeim finnist vofa.
Nú til dags er nokkuð ljóst
að nornaveiðar lifa.
Nú til dags er nokkuð ljóst
að nornaveiðar lifa.
Feminískan finn ég gjóst
er frægðarverk mín skrifa.
Hugsa ég oft um horskan kappa.
Held að allir þekki segg.
Hugsa ég oft um horskan kappa.
Held að allir þekki segg.
Sem margoft sveið á milli lappa
er mæna sat og rak upp hnegg.
Kominn er að fótum fram
því framúr sér hann geystist.
Kominn er að fótum fram
því framúr sér hann geysist.
Féll hann on'í drulludamm.
Dauður þar upp leysist.
Stuðlar vel nafn Bjarna Ben.
Benið við margt rímar.
Stuðlar vel nafn Bjarna Ben.
Benið við margt rímar.
Og jafnan spilar Jónas Sen
um jólin svo á hrímar.
Fordæmd eru fordæmi
um fordild eldri tíma.
Fordæmd eru fordæmi
um fordild eldri tíma.
það var sagt í samkvæmi
þar sveitamenn sig víma.
Ég er alltaf juðandi
og jagast alla daga.
Ég er alltaf juðandi
og jagast alla daga
í trúleysingjum tuðandi
um torfrit sem má laga.
Ekki er gott að enda þar
sem upphaf best mun verða.
Ekki er gott að enda þar
sem upphaf best mun verða.
Oft víst sezt ég inn á bar
eftir hneisu gerða..
Að tali eg Kanamellu mál
mér var sagt um daginn.
Að tali eg Kanamellu mál
mér var sagt um daginn.
En mín er karamellusál
svo minn er góður aginn.
Að virða ekki vandamál
viðlits eykur bölvun.
Að virða ekki vandamál
viðlits eykur bölvun
Mörgum vanda veldur tál.
Verst er held ég ölvun.
Bljúgur vil ég biðja
bænir fyrir þér.
Bljúgur vil ég biðja
bænir fyrir þér.
Það er þarflaus iðja,
er þrár sem úldið smjér.
Undanvilling elti ég
um óbyggðirnar víðar.
Undanvilling elti ég
um óbyggðirnar víðar
Gríðarlega gelti ég.
Gafst mér matur síðar.
Ýmsir látnir bögubósar
bragi yrkja gegnum mig.
Ýmsir látnir bögubósar
bragi yrkja gegnum mig.
Ef að því nú einhver hrósar
eflaust kemst á næsta stig.
Hugsun mín er helst til föst
í höftum forfeðranna.
Hugsun mín er helst til föst
í höftum forfeðranna.
Ætla eg það engan löst.
Öðrum átt að kenna.
Ég á nóg af skæða skinni
skera ætla ég mér kápu.
Ég á nóg af skæða skinni
skera ætla ég mér kápu
og hún verður ekki minni
að efnum til en þarf í drápu.
Fyrir utan fossar nú
fram af þaki rigning stór.
Fyrir utan fossar nú
fram af þaki rigning stór.
Þorði ei heim og þurfti brú
þegar ég á burtu fór.
Orðlaus varð er einhver sagði?
Ertu svona heimskur vinur?