Fiman hef ég fót og því
fer ég oft í dansinn.
Dömunum ég djarfur sný.
Dregst þá að mér fansinn
Kartöflujurtin blóm nú ber.
Borgar sig að hirða fræin?
Kartöflujurtin blóm nú ber.
Borgar sig að hirða fræin?
Eflaust í súpu allt það fer
ef að þeim ég loksins næ inn.
Bundinn er í báða skó
og bærist vart í stormi.
Bundinn ert í báða skó.
Og bærist vart í stormi.
Upp ég fer hátt alltaf þó
er ég stend á gormi.
Ég veit þú hefir mikinn mátt
meginstoð ert okkar þjóð.
Ég veit þú hefir mikinn mátt
meginstoð ert okkar þjóð.
Á því hef því engan drátt
að yrkja dýpri og betri ljóð.
Fyrstu laufin fann í dag
sem farin eru úr litnum.
Fyrstu laufin fann í dag,
sem farin eru úr litnum.
Helgar allt sig haustins brag.
Hátt um þetta vitnum.
Kveðum hátt vorn kæna brag
kemur þá fram snilldin.
Kveðum hátt vorn kæna brag
kemur þá fram snilldin.
Setjum við hann víðfrægt lag
svo vekist upp fordildin.
Upp á stól ég stóð á haus
og starði út um gluggann.
Upp á stól ég stóð á haus
og starði út um gluggann.
Gelti ég þá græskulaus
er grillti öfuguggann.
Fjandinn nú í fýlu er,
því fokk ég sagði.
Fjandinn nú í fýlu er,
því fokk ég sagði.
Ég sagði bara: sama er mér,
og svo mig lagði.
Uppábúinn út ég fer
og ætla mér að skemmta.
Uppábúinn út ég fer
og ætla mér að skemmta.
Ætli að skömmótt æði að mér
illa konan tremmta.
"Munið ei fá meira gos",
mælti fjandinn.
"Munið ei fá meira gos",
mælti fjandinn.
"Ef komið þið með kandí-flos
kætist andinn."
Allir þurfa að eiga vopn
og aðra drepa.
Allir þurfa að eiga vopn
og aðra drepa.
Allar gáttir Ísland opn
ei skal morðin knepa.
Ekki er það dyggð að drepa.
Dragðu ekki upp þín vopn.
Ekki er það dyggð að drepa.
Dragðu ekki upp þín vopn.
Að misstíga sig milli þrepa
og missa fót mun sárin opn-
a.
Klækjabrögð og kúnstugheit
koma vel að notum.
Klæjabrögð og kúnstugheit.
koma vel að notum.
Æji þetta um ég veit.
Öll eru mín á þrotum.
Í dagblaði um dömu las
danska í aðra ættina.
Í dagblaði um dömu las
danska í aðra ættina.
Hún var að reykja hass og gras
og horfa út um gættina.
Þeir sem aldrey þola nauð
þekkja lífið illa.
Þeir sem aldrey þola nauð
þekkja illa lífið.
Íslendingar eru gauð.
Upp þið bráðum svífið.
Á krækilyngið komin ber.
Kút minn hef ég fyllt.
Á krækilyngið komin ber.
Kút minn hef ég fyllt.
Upp það kætir alla hér
ef engu verður spillt.
Loforð þau sem leiddu starf
lýtur enginn framar.
Loforð þau sem leiddu starf
lýtur enginn framar.
Fraukurnar samt fengu arf
fremur ama samar.
Fjáður maður fái arð.
Fjasa ekki og rölva.
Fjáður maður fái arð.
Fjasa ekki og rölva.
Þó að eftir skilji skarð,
af skuldum sumir bölva.
Bölið verkja búið er
og bókinni er lokað.