Orðlaus varð er einhver sagði?
Ertu svona heimskur vinur?
Orðunum svo út af lagði,
út úr þeim fékkst góður hrynur.
Furðulegan fékk ég svip
er fraukuna ég kyssti.
Furðanlegan fékk ég svip
er fraukuna ég kyssti.
Hún fer oft í útlend skip.
og oft ég held hún gisti
Bið þig kveðju að bera til
Bollastaðakisu.
Bið þig kveðju að bera til
Bollastaðakisu.
Henni gera skal ég skil
með skuplufylli af mysu.
Allt sem hef ég óskað mér
er að rætast núna.
Allt sem ég hef óskað mér
er að rætast núna.
Flest eins og af sjálfu sér
en sumt er fyrir trúna.
Þú ert sagður maður minn
af mestu prestaættum landsins.
Þú ert sagður maður minn
af mestu prestaættum landsins.
Því ég ætla enn um sinn
að auka styrkinn trúarbandsins.
Fyrir ofan Fagradal
er fjallið samnefnt honum.
Fyrir ofan Fagradal
er fjallið samnefnt honum.
Um það hverfist allt vort tal.
Eftir gosi lonum.
Bankar hjá mér bragni hýr
Brennivín hann er að sníkja.
Bankar hjá mér bragni hýr
Brennivín hann er að sníkja.
Kannski finnst hér kútur nýr,
karlar tveir þá fara að skríkja.
Sjóriðan nú sækir að
sjálfum landkröbbunum.
Sjóriðan nú sækir að
sjálfum landkröbbunum
þá þeir fara í þrifabað
með þreyttu skítlöbbunum.
Þá ég fer í þrifabað
þá er vatnið mórautt.
Þá ég fer í þritabað
þá er vatnið mórautt.
Tappinn úr, og allt af stað,
það ofan rennur sjóblautt.
Fundargestir fögnuðu
er framsögu var lokið.
Fundargestir fögnuðu
er framsögu var lokið.
Róttækir þá rögnuðu
og ræstu á sér kokið
Þú er bara djöfuls dóni
drekkur sprittið hérna
Þú er bara djöfuls dóni
drekkur sprittið hérna,
veldur síðan vondu tjóni
er vætir sokka ferna.
Lopapeysan lífsbjörg er
þá labbað er á Kili.
Lopapeysan lífsbjörg er
þá labbað er á Kili.
Barg frá illum bana mér
er ból eg hafði í gili.
Góða hugmynd höfum við.
Hún mun bæta þjóðarkjör.
Góða hugmynd höfum við.
Hún mun bæta þjóðarkjör.
Virkjum eldgos, eldum svið,
og oná höfum hnausþykkt smjör.
Lengjum enn þann labbitúr
sem leiðir mann að gígum.
Lengjum enn þann labbitúr
sem leiðir mann að gígum.
Hann þá verður heilsukúr,
ef hlaupum eftir stígum.
Fékk á áðan skessuskot.
Skreið ég upp í rúmið.
Fékk á áðan skessuskot.
Skreið ég upp í rúmið.
Svitnaði, og fór á flot,
nú flýt ég út í húmið.
Litríkt var að líta þá
sem lögðu í stoltsins göngu.
Litríkt var að líta þá
sem lögðu í stoltsins göngu.
Efldu þá sem ýmsir smá
og eru beittir röngu.
Þú ert líkur fagurfífli.
Frama muntu hljóta.
Þú ert líkur fagurfífli.
Frama muntu hljóta.
Ef ég sæki um hjá Vífli
eflaust mín mun njóta.
Skrattinn hefur skemmt sér við
að skelfa mig og hrella.
Skrattinn hefur skemmt sér við
að skelfa mig og hrella.
Allt hans töfra og trúðalið.
frá trúnni mig vill brella.
Ég er orðinn alltof fullur
ætla að leggja mig.