Netsins þræðir festa, flækja,
frá má krækja
Metsins gæði gestir sækja.
Gráblá rækja má þá hrækja.
--------------------------
Óð hér botninn útúr kú
einsog hundur grafinn
Óð hér botninn útúr kú
einsog hundur grafinn
enda mun ég ykkur nú
yfir mjög svo hafinn.
Hjá mér enginn hroki finnst
hugarfarið "perfeckt"
Hjá mér enginn hroki finnst
hugarfarið "perfeckt"
snyrtilegur yst sem innst
innihaldið verr þekkt
Haustar að á Ísalandi
ógó mun það gegt
Haustar að á Ísalandi
ógó mun það gegt
hvenær ætli Enter standi
eikka erða tregt.
Byrjar hann að brúka kjaft
Baggalútsins stjóri.
Byrjar hann að brúka kjaft
Baggalútsins stjóri.
Fordæmir hvern fylliraft
forkólfurinn stóri.
Hvarf í dag frá háu þingi
Halldór nokkur Ásgrímsson.
Á Selvolgsbanka synda um
sautjánþúsund lúður
Þá þýðir ekkert fát og fum,
við fyllum brimsins túður.
Beitum núna lúðulóð,
með linu hrossaketi.
Beitum núna lúðulóð,
með linu hrossaketi.
förum strax á fiskislóð
fyllum bát af meti
svo ef bítur ekkert á
et eg ketið sjálfur
svo ef bítur ekkert á
et eg ketið sjálfur
þessu af ég þegar sá
þú munt vera kálfur
úldið ketið oní þér
ólgar bara og kraumar.
Of seinn
svo ef bítur ekkert á
et eg ketið sjálfur
úldinn hestur er að sjá,
eins og morkinn kálfur.
Hrossakjötið grasagrænt,
gott er mjög með sósu.
úldið ketið oní þér
ólgar bara og kraumar.
En passar vel í maga mér,
ef með því spik eitt laumar.
Drykkjarföngin drepa fljótt,
dreyrarsýkla ljóta.
Ef himininn er heiður
held ég skori Eiður.
Því Bauninn, hann er breiður,
belgmikill og gleiður.
Í boltaleikjum börnin góð
berjast um á hæl og hnakka.
Hæl og hnakka = Ofstuðlun.
Ef himininn er heiður
held ég skori Eiður.
Nú er landinn leiður,
lúinn, sár & reiður.
Í boltaleikjum börnin góð
berjast um á hæl og hnakka.
Að háð´ & spotti höfð er þjóð
hún sér lætur saman pakka.
--------------------------
Ófarirnar ennáný
Íslendingar máttu þola
Hæl og hnakka = Ofstuðlun.
Þetta er ekki rétt hjá þér, blóðugt. Það er ekkert athugavert við að tvö orð í annarri línu byrji á sama stafnum svo fremi að hann sé ekki sá sami og höfuðstafur. Það væri aftur á móti ofstuðlun.
------------------------------
- Þetta myndi vera réttmæt athugasemd hjá klerknum.
Fyrirbrigðisins má finna allmörg dæmi í kveðskap hinna beztu skálda, man reyndar ekki eftir haldbæru dæmi í svipinn . . .
Ýmsum þykir þó rétt að sneiða hjá slíkri samstöfun á eftir höfuðstaf, svo þetta mætti kalla smekksatriði. / - z n ó j -
Hér er dæmi með gnýstuðlum.
Snyðja læt eg, kvað snerpir málms,
snekkju barð úr Sogni.
(Fjölþjófnisrímur gamlar.)
Hér eru gnýstuðlarnir sn svo það gerir ekki til að orðið Sogni sé þarna.
Z. N. Ó. J. skortir dæmi. Hér gætum við vitnað í Jónas Hallgrímsson. Þetta er vísa sem allir þekkja.
Snemma lóan litla í
lofti bláu DírrinDí.
Fjölmörg fleiri dæmi eru til hjá Jónasi (fyrsta bókin sem ég sá í bókahillunni).
Ófarirnar ennáný
Íslendingar máttu þola
Bolta hríðin brunar því,
brösug líkt og gola.
Áfram kæra Ísafold,
upp nú brettum ermar.
Áfram kæra Ísafold,
upp nú brettum ermar.
Leggjumst ekk'í landsins mold,
á lömpum eru skermar.
Veltir fyrir sér hvað lamparnir eru að gera þarna.
Boltaspark er barnalegur
bjánaleikur aumingja.