Lóðin grösug græn og fín
en greiða vill um biðja
Kveddu betur kvæðin þín
svo komist hér á iðja
Iðja græn og grosug tún
glampar sól í heiði.
Bjarna gamla brá í brún,
er Binna fór í veiði.
Veiðisögur virðast oft
vera nokkuð ýktar.
Hendur upp þá hátt á loft
hálfsannar og sýktar.
Sýktar og með garna gaul
gapandi með hita.
Heirðist þá í Bjarna baul
bölvuð er þessi skita..
Skita, doði og skjögur var
í skjátum þínum, það ég veit.
Á heyið varstu helzt til spar
en hafðir góða fjörubeit.
Fjörubeit er bölvað tros,
bara fílu þari..
Ærnar fara i lurðu los
og leti í þeirra fari.
Farsótt aftur kom á kreik
covid 19 veira,
Víðir strangur veður reyk
Vill ekki fá meira.
Meiraa þarf af þaranum
þusar gamla Stína..
Og hugar að skjátu skaranum
skammlaust,tautar,Lína.
Línudans ég oft fer í
aldrei samt of mikið.
Lífið er samt lotterí
lend"oft yfir strikið
Striki vill ég halda helst
heldur betur,
káatur núna karlinn telst,
kemur enginn vetur!
Vetur sumar vor og haust
verður svona endalaust.
Heyrist fátt í Halla aust
hefur samt hann djúpa raust.
Raust sína rekur upp
rokna sterka háa
Hafið fyrir innan Hupp
Himinfagurbláa
Himinfagurt blikar blátt
bæjarfjallið núna.,
Tilsýndar er himin hátt
ef horft er yfir brúna,.
Brúnþörunga bauðst þú mér;
beltisþara og marinkjarna,
sem tíndir þú við Skarfasker
og skenktir kærum vinum gjarna.
Nú rer hérna dýrðar dagur
dásemd,engu lík..,
Yndisleur friður fagur
fallegt er í Reykjavík.
Reykjavík æ Reykjavík
ræfilslegur staður.
Umferðin þar engu lík
og enginn sést þar glaður.
Glaður ég horfi á hafið
haföldur skella við klett.,
löngum ég ungur þar undi
ummvafinn fegurðar smekk,
Gráhvíta þokann oft læddist
með ströndinni og að otta mér varð,
mikið ég hana hræddist
og reydiað högvva í hana skarð.