Ungan svein ég ekki vil
endagörn hans þótt sé mjúk
af því ég er ekki til
í að strokka varman kúk.
Kúkaðu bara kallinn minn
kýldu svo vömbina aftur
Strák ei máttu stappa inn
stæriláti kjaftur
gráðugur er gjarnan sá
er getur étið
fínar steikur fer að þrá
og feita ketið
Vínið þjóra vikum saman
vel af læknadópi tek
konur aftan frá og framan
furðu oft ég böll í rek.
Ég hef verið full- fljótur eða fljót- fullur til að sjá aðeins vínið en ekki allar bragvillurnar.
Kambódiu-Khmerarnir
kjötið manna átu
Stanazólon- sterarnir
sturlun valdið gátu.
Gátu ekki Geir og dór
gefið okkur meira
Hamast svo með hálfgert slór
og hommaskap í Geira
Geir er vinur, gamall, minn.
Geir var sómadrengur.
Geir - þú vandar vinskapinn
varla mikið lengur.
Einn er maður öðrum verri,
eitraður er vilji hans.
Eyða vill hann köku hverri,
kökugerðarmeistarans.
ansa þú mér, þýða mær
þiggðu vænar rósir
þannig ætíð Isak nær
í aðrar lausungsdrósir
Varla hef ég vilja til,
vísu hér að yrkja.
Heiladauður hér um bil,
hausinn verð að styrkja.
Styrkja þarftu stórlega
stjórn þína á víni
annars muntu lík-lega
líkjast meira svíni.
Brýna vil ég busa minn,
bitlausan og deigan.
Svo eta megi úlfsbóginn,
ofsoðinn og seigan.
Brennt ég hef í Borgarfjörð,
á böllin hérna forðum.
Klæmin var þar kvennahjörð,
sem kelað' undir borðum.
Halanegra, núðlur, smér,
næpur, rúgbrauð , sveppi.
Aukinheldur; engifer
& átján blóðmörskeppi.
Sligast undan slæmri gift
slöttólfur frá Hrauni
Skrítin þessi skapa drift
skuldir honum launi
Sveitakaupfélögin svelta,
svangir enn framsókn þó elta,
"íhald er æði,
og yndislegt sæði"
hundarnir hátt ennþá gelta.
Kaupfélögin bættu byggð
byggðu sveitir penar
Nánast orðin týnd sú tryggð
tapaðir þeir spenar
Of seinn.
Geltir þessi gaulari
gaukar hér að vísu
Ruglar nú minn raulari
reynir hér við skvísu