Bita tómt er boxið mitt
blásnauður ég slóra,
mætti ég fá mat og hitt
mun ég lengur tóra.
Tóra hér við sultarsöng
sómaskáldin mögur
áður fyrr þau ortu svöng
afbragðsgóðar bögur.
Bögu góða gæfi þér
góði ef ég kynni.
Vísnabrauð og vísnasmér
væri betra handa mér.
mér var forðum kennt að kyssa
kvenmenn - ekki drengi
uppálagt var og að pissa
á þær vel - og lengi
Lengi drengur lærði og
lá svo yfir bóknum,
fengi þvengur þvagsins sog,
þægur var í lóknum.
Lóknum digra lær við slær
ljótur er á svipinn,
gamla kuntan kannkast hlær
kannast hún við gripinn.
Gripinn varst þú gaurinn minn
glóðvolgur að verki
Stubbur litli stuðull þinn
stemmir ei við merki
Merki eru mikilvæg
margt þau segja oss
sum eru víst svaka fræg
Sony, Coke og Boss
Bossinn fagri blasir við
ber og til í stuðið,
vinuna ég velt'á kvið
við mér blasir skuðið.
Skuðið mjúka stásslegt er
sífellt til í rallið.
þegar reður rauður fer
í rauvina hefst ballið.
Skuðið mjúka stásslegt er
sífellt til í rallið.
þegar reður rauður fer
í rauvina hefst ballið.
Skuðið feikna skurður er
Skal þar enda rallið
þegar reður rauður fer
í rauvina hefst ballið.
böllin sækja margir menn
mestu þar kann valda
kappsmál þykir körlum enn
að komast undir falda.
menn verða að þassa stuðlana..
Falin er hér fjársjóður
fundið hef ég gullið
Varla er það viðbjóður
vælið mitt og bullið.
Bullið víst er viðbjóður,
væri betr' að þegja.
Því fálæti er fjársjóður,
falinn meðal meyja.
Meyja fangar mitt hjarta
mögru gleður árin
sækist hún í síðbarta
og svölu bringuhárin
bringuhárin brenni af
ber á kroppinn feiti
því keppnin ungfrú Atlantshaf
er á næsta leiti
ha ha, nú hló minn!
Leiti á mig aldin frú
upphátt bænir þyl ég,
óttasleginn iðka trú,
ekki kafna vil ég.
Ég um mig frá mér til þín
mínar óskir berast,
blessuð sértu sveitin mín
í sumar mun það gerast.