Flæða bækur yfir oss
ekki nokkur friður
Detti- fallegur er foss
friður sé með yður.
Skvísur eru skrapatól
skott mitt óðan gerir
maka vil ég með í ból
mætast kroppar berir.
Berir kroppar bera af
betra verður ei á kosið,
firsta kona er kossin gaf
konan Eva með fagra brosið
Epla mauk og eðal vín
efla hugann drengir,
Brosið illa brenndi líf
barst til manna löstur.
Beit í eplið Adams víf
illgjarn brennur köstur.
Köstur mikill kyndir vel
kuldan burtu rekur
Hér við arinn eldinn dvel
úr mér hrollinn tekur.
Tek ég þar undir minn offari sæll
eldurinn hrollinn burt svælir
Á lazyboy stólnum nú liggur minn hæll
ljúfur svo mjöðurinn kælir.
kælir bjórinn kverk
kinda vínin sterk
miðla staupin merk
milda óðarverk
Óðar verkin vinnur hann,
víða grípur niður.
Barbapabbi bætir rann,
bragar tengiliður.
Tengiliður lekur út
leyndardómum Bagga
Svikarann nú kveð í kút
karl skal niður þagga.
Þagga niður þrjóta tvo
þess mun heldur getur
Vona ég að verði svo
visni þeirra sálar tetur
Tetur mitt kann tæplega
tápið hér við glíma
Gantast verð ég gætlega
glettnin má ei pína.
Pínulítill pungurinn
passar kúlur tvær
en áðan gaf löðrungurinn
aðra niðr´í tær.
Tærist sundur trukkurinn
truntan fer að bila
Pilnik karlinn Purkurinn
pönkið vill nú spila.
Spilið fasta, ryðið rautt
roða gefa dallinn,
kvótinn farinn, fleyið dautt,
fyllir hafnarstallinn.
stallinn settu Stalín á
stórbilaðir kommaskrattar
viti sínu voru frá
- villu þeirra enginn fattar
Fattarinn er farinn burt
flaug með sovétríkjum
stóð í koki stalín þurrt
stolisnoj með mýkjum.
Mýkjum okkar málfar nú
mælum kærleiksorðum
Jólin eru okkar trú
enn sem heiðnin forðum
Forðum okkur fýlan mun
farga öllu kviku,
á mannfjöldann þá herjar hrun
í hálfa aðra viku.