Hvað í fjáranum er hjass?
Feit kona...held ég.
Eru þá hlass og hjass það sama? Klórar sér í höfðinu
Ég útskýrði hvað ég held það sé í kvæðinu sem eyðilagði þráðinn í smá stund en það er seinast á síðunni hér á undan.
Endajöxlum öllum ég glataði í gær
gatslitinn með þreytubauga stóra.
Margur hefur orðið endanlega ær
er sopið hefur volga flata bjóra.
Bjóra góða, brillijant
í bumbu, fjóra, langar
Alla þá ég þjóra, pant!
Þamba stóra' uns vit er grannt.
Muldrar pirringslega og fer
Grannt ég skoða tunglið tregt
tím'á meðan glata.
Mánans skin er skemmtilegt
skyggð nú er mín gata.
Gatslitinn er garmurinn,
gamli jakkinn, afa,
Alltaf hefur ullarskinn
yljað karli' án vafa.
'Eg vil fá afdráttalaust svar frá Nafna .,-Of seinn.,
sem ítrekað hefur sínt mér lítilsvirðingu,
höfum við ekki
allir sama rétt hér á lútnum? Svar óskast.
Innskot Hlebba.
Sjá innlegg mitt hér að neðan.
-----------------------------------
hjassi eða hjass
er heldur svifaseinn maður.
------------------------------------------
Gatan breiða heljar brött
bugðast öll í hlikkjum
kanski hugsa út í hött
að höfðingjar verði í skikkjum.
Vafalaust er voðin slitin
væskilsleg og illa skitin
ekki sjáum lengur litinn
ljót hún er og flóabitin.
Skikkju ekki ákveðum
ögn með rímið bruðlum
þó Lappi enn í lágkveðum
laginn raðar stuðlum.
volaðu ekki vænsta skinn
vertu frekar keikur
þó Lappi stubbur stöðugt sé
í stuðlum svoltið veikur
Veikur út í vetrarhríð
vafra nú og titra.
Bráðum kemur betri tíð
bráðum mun sól glitra.
Glitrar dögginn gervörtá
gleið hér liggur sprundinn
Kátur vil ég koki ná
kaf skal gleypa brundinn
Brundinn Nermall býður oss
bölvaður sá perri,
þú ert líkt og lamað hross
lyktin er þó verri. dónalegt?
Brundurinn úr belli gaus
bera stálið tundrar
svona eins og kella kaus
kuntuna ekkert undrar
Versnar ekki vefurinn
viðbót þín hér bætir
Rímur kveður refurinn
rödd sem alla kætir.
Kætir okkur klám og níð
karlinn væni góði
þó mun koma treg sú tíð
er tæm'úr ljóðasjóði
Sjóða vil ég saltfiskinn
sultu gott það fæði
Kem ég með á matdiskinn
mör svo yfir bræði.
Bræði mör og snæði snautt
sneysifullann diskinn,
heila ýsu hræið dautt
held ég besta fiskinn.
Ljóðasjóð á laggir setti
lappi gamli álfurinn,
hendurnar til himins rétti
hrekkja lómans kálfurinn.