Meti hver sem metið getur metaregnið.
Til að bæta, alla egnið.
Egnid þa sem eiga sjens a endurkomu,
adur en þeir verda ad vomu.
Vomur komu á mig þegar þig ég þekkti.
Aldrei þrífist þetta slekti.
Slekti það sem sleikti kött og sló í gandinn
hefst með þeim sem hirðir fjandinn.
Fjandinn hann mun fagna þér sem faðir syni.
Óvininn þú átt að vini.
Vini mína vil ég geta varið falli
ef þeir hrasa onaf palli.
Palli litli litlum heimi lifði einn í,
enda skólann aldrei seinn í.
Seinn í tíma sjálfsagt varð ég svoltið mikið
Eitt sinn fór ég yfir strikið.
Strikið hef ég stikað upp og strunsað niður.
Á þeim túr var enginn friður.
Frið á jörð má finna ef þú friðar nýtur
ein um nótt, þá annar hrýtur.
Hrýtur sá sem hrundi fram á hrokið borðið.
Áðr'en vaknar - ykkur forðið.
Forðabúrið Frónverjans er frystikistan.
(Þar oní geymir Ísold Tristan.)
Tristan fór á trúnó þá hann tók inn seyðið,
með Ísold hófst þá ástarskeiðið.
Ástarskeiðið endaði á ansi vondan
hátt. Þau dóu. Hann á undan.
Undanbrögðin ætla ég að enginn líði,
herskyldan þá hefst í stríði.
Ástarskeiðið endaði á ansi vondan
hátt. Þau dóu. Hann á undan.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Stríð eitt háðu Stokkseyri og Stykkishólmur.
Margur lét þar eins og ólmur.
Ólmur hef ég orðið þegar æsast leikar.
Finnst þér góðir franskir sleikar?
Sleikar franskir fransós valda, far því í vor
gætilega í gælur, Ígor.