Útskýring á hnakka í orðabók Göndulsins:
Hnakki: er sá sem gengur um í Henson galla, kaupir heila geltúpu fyrir hverja hárgreiðslu, gengur um með Pottþétt diska í vasanum, ganga um í netabolum, hlusta á FM allan daginn og koma frá ákveðnum stað á Suðurlandi. Og verstu hnakkarnir eru þeir sem þykjast vera rokkarar með því að ganga um í bolum með rokkhljómsveitum og vita síðan ekkert um þær.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Talarðu svona um minn heimabæ? Á ég að buffa þig?
Stekkur inn í gulu Honduna með Scooter í botni
Að vera hnakki er lífsstíll... ég var ekkert að setja út á það. Það hafa allir rétt til að velja hvernig þeir vilja vera og hvernig ekki.
Ljómar upp og blikkar Sverfil Bergmann
Ég var bara að grínast. Ég á nú bara venjulegan Toyota eðalvegn...
Ég á líka Toyotu Corollu "92 módel.
Ræður ekki við brosið
Aha... en svo myndi ég skrifa páskar með litlu p-i vegna þess að ég er heiðin og fyrir mér er þetta ekki svo merkilegt að það eigi skilið stórann staf. Ekki frekar en jól, hvítasunna eða guð.
Flissar
Samkvæmt orðabókinni minni eru páskar með litlum staf, sömuleiðis jól og hvítasunna. Mun það í samræmi við að skrifa mánudagur með litlum staf. Enda hlýtur til dæmis orðið jól að vera samnafn þar sem átt er við öll jól sem til eru. Hins vegar er orðið Guð afar oft notað um ákveðinn guð sem hefur verið gefið sérnafnið Guð. Það að gefa einum ákveðnum guð sérnafnið Guð er auðvitað heldur óheppilegt og sýnir ákveðna einræðistilburði í garð þeirra sem eru annarar trúar. En það að nota litla stafinn þykir mér jafnvel enn ruglingslegra.
Föngum villuráfandi unglingana inn á Gestapó og útskrifum þá sem vel ritfæra Íslendinga! Fyllist eldmóði og bjartsýni
Safnar saman öllum netadræsum af höfnum landsins og hnýtir saman í risastórt troll. Leggur á ráðin um að varpa netinu úr þyrlu yfir skóla landsins í fyrstu lotu og ná þannig til alls ungdómsins á einum stað. Það vantar bara heiti á átakið, eitthvað í ætt við heræfingarnar sem hafa verið hérna og kallast „Vinalegi-vestur-víkingurinn“ eða svipað. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann í leit að nafni
Thad er totally OUT ad tala lelega íslensku
Æjjj... hætiðði þessum rugli gaurar!1 éG fíla þennan ekki!
Gefur frá sér vellíðunarstunu og slefar duglega
Mér verður nú bara hugsað til hins stórkostlega tímamótaverks "Speak English or Die" með S.O.D. við að lesa þessa umræðu.
♪Á íslensku má alltaf finna svar, orð um stórt og smátt sem er og var...♪ eða eitthvað þannig. rifjar upp gömlu lögin frá Ísaksskóla
Mig langar í ísskólann
Starir þegjandi út í loftið og hugsar hvort eitthvað þannig sé til
Þó mér finnist þessir s.k. hnakkar ekki áhugaverðir frekar en gelgjur og illa skrifandi óféti af öllu tagi, vara ég við þessum útrýmingar skrifum sem hér hafa komið fram. Setur upp vandlætingarsvip og hvíslarSvona lagað er unnið á bak við tjöldin.
Til að hefja umbætur í málfari á meðal táninga legg ég til að við gerum AllaTralla útlægann. Bæði fyrirlít þessa ógeðslegu mynd hans og legg fæð á skrif hans.
Nei, við skulum freka uppfæra hann. Myndin er ekkert verri en margar aðrar og ég er viss um að Alli getur lært.
Jájá. Það er eflaust hægt að berja íslenskuna í hann eins og flesta.
Nær í hafnaboltakylfuna
Á henni má greina áletrun... “Málfríður“
Tekur upp fiðrildahnífinn Réttrýting og sveiflar honum glæsilega um sig allan.