Nógu er ég myndarlegur! Brosir colgate-brosi
En ég vill þá fá undirmann sem sér um að ýta Zetornum í gang!
Ég tók það fram í upphafi að starfsmaðurinn þyrfti ekkert að vera fallegur, en það gerir svosem ekkert til.
Geturðu ekki bara þjófstartað Zetornum? Eða gengið þetta spottakorn með pappírana?
Eru kannski fleiri áhugasamir um starfið?
Þjófstarta? Heldurðu að ég sé með rafgeymi í honum?
Ertu ekki með rafgeymi í honum? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Nei, til hvers að hafa rafgeymi?
Ég hélt að þú vissir það? Klórar sér í höfðinu
ÞÚ átt að vita það!
Annars færðu ekki starfið.
Það þarf ekki rafgeymi. Er ég þá ráðinn?
Segjum það, enda virðistu léttur á fóðrum.
Skrepptu með þessi blöð og ljósritaðu þau og farðu svo með þau til Vladimirs og láttu stimpla þau og komdu svo með þau til mín svo ég geti undirritað þau og farðu svo með þau til albins.
Ekki fyrr en ég fæ einhvern til að ýta Zetornum.
fer í kaffi
Þú verður þá að redda því sjálfur, annars færðu ekki starfið.
Þarf ég að gera allt sjálfur hérna?
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Nei, elskan mín góða, ekki allt. Ég skrifa beiðnirnar og nota svo afkóðunarvélina þegar ég loksins kannski fæ hana - og verð búin að læra á hana.
Ég óska hér með eftir hraustum Zetorýti til starfa strax!
Ætlar að bjóða sig fram en man allt í einu að hann er slæmur í öxlinni.. og úthald á við lungnalaust Letidýr .
Frændi minn er ættaður utan úr geim. Hann er ljótur.
Skrítið ferðalag. Ég byrjaði á Gestapó, smellti á Næturgöltinn og þar smellti ég svo á þráðinn Góða nótt. Þegar þangað er komið sé ég að neðst á síðunni stendur Vísindaakademía Baggalúts og efst stendur Skilaboð utan úr geimnum.
Eru þetta ormagöng? Eða er ég að færa ykkur skilaboð utan úr geimnum?
Klórar sér í höfðinu
Góða nótt... eins og ég ætlaði að segja upphaflega.
Vjer fundum hvergi vísindaakademíuna eftir þessari leið. Svo virðist hinsvegar sem hið ótrúlega hafi gerst: Að þjer hafið fundið þráð sem í raun og veru er alveg tómur, sbr. laumupúkaumræður fyrir skömmu Ljómar upp.
Nú göngum vjer hinsvegar formlega til náða og tilkynnum það hjer þar eð eigi er mögulegt að tilkynna það í umræddum Góða nótt þræði því hann er ekki til nema bara sem nafn þráðarins.