Ég man góða tíma.
Ég man, að páskaegg voru eitt á mann, ekki tvö fyrir einhverja ofvirka keppi.
Ég man þegar botninn á páskaeggjunum var svakalega þykkur.
Vjer munum þá sælutíð er vjer fórum á internetið til þess eins að taka þátt í líflegum samræðum hér á gestapóinu. Fær tár í augun af þáþrá
vjer munum eftir því að hafa svarað umræðum því sem næst samstundis
Ég man þá gömlu góðu daga þegar Ómar hafði hár.
Nei, reyndar ekki.
Ég man þá gömlu góðu daga þegar Raggi Bjarna söng um þá gömlu góðu daga þegar Ómar hafði hár.
Ég man þá gömlu góðu daga þegar Ómar var með smá hárlufsu
Ég man þegar Ríó Tríó vídeóin með "Óla Jó", "Þegar Stebbi fór á sjóinn" og "Verst af öllu" komu fyrst í sjónvarpið.
Vjer munum eftir ótal sigrum vorum í Sá sem er síðastur að svara - vinnur! Ljómar upp í plútóníumbjarma
Vjer munum eftir ótal sigrum vorum í Sá sem er síðastur að svara - vinnur! Ljómar upp í plútóníumbjarma
Takk kæri vin. Ég met það mikils að þú skulir minnast allra sigranna minna.
En ég man eftir Sædýrasafninu
Ég mundi allt í einu eftir Kum Kum eldsnemma á sunnudagsmorgnum á fyrstu árum Stöðvar 2.
https://www.youtube.com/watch?v=QdtKKvHM79A
Óljóst... Klórar sér í höfðinu
Ég var ekki partur af fína fólkinu sem var með stöð 2 svonég veit ekkert hvað þetta er.
En ég man eftir stórmyndinni Karate Kid og horfði á hana um daginn eftir að hafa rekist á þættina Cobra Kai.
Ótrúlega steikt en svolítið skemmtilegt stöff
Wax on - Wax off!!
Ég mundi allt í einu að ég hef aldrei séð Karate Kid... mig hefur langað til þess í 30 ár en aldrei látið verða af því.
Sama á við um Never ending Storý... Starir þegjandi út í loftið
Ég man fátt, en þó rámar mig í að hér hafi verið gaman einhverntíma í fyrndinni. Hvæsir hræðilega og fýkur út um gluggann
Íhugar að útskýra fyrir Huxa að gamanið hafi talsvert kárnað hérna þegar 95% notenda hafi látið sig hverfa á handónýtar smettisskruddur. En nennir því ekki...
Ég man þegar Grágrímur sagðist ekki hafa séð karate kid. Ertu búinn að fara í þetta mál?
Neibb. Man allavega ekki eftir því.
Ég man eftir Sóda Strím!