Stofnar "Garðabæ hinn eystri" hringinn í kringum "Hafnarfjörð hinn eystri" hringinn í kringum Seyðisfjörð
Byggir brú frá "Hafnarfirði vestri" í "Hafnarfjörð eystri"
Pikkar í öxlina á Vlad
Ég veit um einn kakómálaráðherra sem er ekki búinn að fá sína einkaþotu. Beinir merkingarþrungnu augnaráðinu á forsetann Það getur stundum verið erfitt að treysta á að fraktvélarnar fari nógu vel með leyniefnið, sjáðu til.
Hverskonar símamálaráðherra er það annars sem ekki er með einkaþotu ? Klórar sjer í höfðinu
Ég er náttúrulega bara hálfur símamálaráðherra og þess vegna á ég bara hálfa einkaþotu. Hún virkar bara ekki almennilega eftir að hún var skorin í tvennt...
Stofnar einkaþotuverksmiðju og ákveður með semingi að hver ráðherra skuli þá hafa tvær einkaþotur
Bíður spennt eftir að fá þoturnar sínar
Kúl!
Tvær!
Bíður spennt eftir dýramálaráðherraþotunum
Stofnar einkaþotuverksmiðju og ákveður með semingi að hver ráðherra skuli þá hafa tvær einkaþotur
Veiii!! Klappar saman lófunum og gleymir vandræðum lítilmagnans eins og allir valdhafar
Flýgur til Ulan Bator - af því að það er fyndið nafn á borg
Límir sogskálar á Þarfa
Flýgur til Djibuti og Llanfairpwllgwyngyllgogerychwyrndrobwllllantysiliogogogoch af sömu ástæðu
Llanfairpwllgwyngyllgogerychwyrndrobwllllantysiliogogogoch! Ég er einmitt á leiðinni þangað líka!
Veltir fyrir sér hvort litla þorpið með stóra nafnið geti tekið á móti tveim einkaþotum í einu. Veltir því í framhaldinu fyrir sér hvort þar sé yfirhöfuð einhver flugvöllur
Ah, ég skrepp þá bara til Tetaumatawhakatangihangakoauaotamateaurehaeaturipukapihimaungahoronukupokaiwhenuaakitanarahu í staðinn. Fjæreyingarnir hljóta að taka vel á móti mér.
Tekur sér stöðu á flugrautinni með þumalinn uppí loft
Er einhver að fara til Akureyrar ?
AHAHA þú ert ekki ráðherra! Þú átt enga þotu!
Nuddar einkaþotunum sínum tveim í sárið á Hvæsa
Tekur sér stöðu á flugrautinni með þumalinn uppí loft
Er einhver að fara til Akureyrar ?
Ég er að spá í að skreppa til Parísar í verslunarferð eftir hádegi, það væri kannski möguleiki að henda þér úr einhvers staðar fyrir ofan Akureyri. Þú átt þína eigin fallhlíf, er það ekki?
Ég vill þotu !
Borar í nefið og setur horköggul á þotuna hennar Tigru
Takk AnnaPanna, jú ég held ég eigi nú eina gamla fallhlíf hérna einhversstaðar.
Rótar í kössum inni á þurrlager
Hérna er hún Ljómar upp
Ég þarf bara að stoppa í nokkur göt.
Þrífur horið af með fallhlífinni
Má vera að þessi mállýska sé með öllu horfin á Íslandi, hún er þó enn hagnýtt af fræðimönnum. Ég las áhugaverða grein um þekkingarfræði þar sem menn veltu vöngum yfir því hvort ekki væri hér komið tungumál náttúruspekinga er þeir höfðu lengi reynt að smíða til þess að draga úr kvíavillum og einfalda alla rökfræði. Tungumálið/mállýskan leysir allskyns vandamál sem áður höfðu reynst brösótt.
Skyndilega fundust svör við spurningum eins og: Hver er tilgangur lífsins? og Hvar stal kökunni úr krúsinni í gær?
Einfaldleikann hljóta allir að meta: iiiiiiii
Þetta hefur leitt til byltingar í þekkingarfræði. Heyrst hefur að Chomsky sé við það að ráða úr því hvort glasið er hálftómt eða hálffullt.
Chomsky smomsky, ég er löngu búin að átta mig á þessu. Ef maður sér ekki hvort glasið er hálftómt eða hálffullt, þá hellir maður bara úr því í minna glas, þá er alveg nóg í því! Ljómar upp