Tjalli?
Ég veit því miður ekki hvað það orð þýðir nákvæmlega svo ég get ekki svarað þér á afgerandi hátt.
Breskur?
Office-gaurinn?
Akkúrat. Bara gá hvar ég hefði þig. Annars er ég ekkert sérstaklega góður í að muna nöfn á leikurum sem mér finnst leiðinlegir, nema náttúrulega að hann heiti Hugh Grant, en ég neita að kalla hann skemmtikraft...
Er þetta ekki annars alveg örugglega grínisti í sjónvarpi?
Nei. Þetta er ekki alveg örugglega grínisti í sjónvarpi.
ÉG ætla samt að halda áfram að halda að þú sért að tala um stand öpp gæja og giska á Eddie Izzard.
Nei. Þetta er ekki Eddie Izzard.
Tónlistarmaður?
Ekki að atvinnu nei. En hann hefur sannað ágæti sitt hvað við kemur tónlistarflutning.
Það er búið að taka ykkur 20 daga núna að reyna að komast að því hvern ég er að spyrja um. Ef ykkur tekst það ekki fyrir 15. desember þá segi ég réttinn lausan.
Er hann viðloðandi kvikmyndir?
Er hann með hár?
Nei, hann er ekki uppistandari.
Já, hann er ansi viðloðandi kvikmyndir.
Já. Eins og önnur spendýr er hann með hár. Og á höfðinu sér í lagi. Oft á tíðum í andlitinu líka.