Þetta minnir mig á atriði úr Hitchcock-mynd.
Man þó ómögulega nafnið...
Nei, ekki er það Hitchcock mynd. Myndinn er nýrri en það, þó er hún svolítið 'retróleg' að vissu leyti, þó allir taki kannski ekki eftir því.
Er þetta Nicholas Cage mynd?
Er þetta ein af þessum sportbíladellumyndum?
Alls ekki. Bílar þjóna engu sérstöku hlutverki umfram hið hefðbundna í þessari mynd.
Myndin gerist í Evrópu.
Mmnjaaa hún er óræð, hvað land varðar. Leikstjórinn er Íri, aðalleikarinn Kani og hinir leikararnir koma frá ýmsum hornum Evrópu. Franskir leikarar eru áberandi.
Úff. Mér dettur í hug Ronin eða James Bond, það stemmir þó engan vegin við síðasta innlegg frá herra Hú.
Er þetta níutíuogeitthvað mynd?
Írskur leikstjóri? Eru þeir fleiri en Neil Jordan?
Rónin er góð tilgáta, en röng.
Myndin er tiltölulega nýleg, frá 1. áratug þessarar aldar.
Það hljóta að vera til fleiri írskir leikstjórar en Neil Jordan, rétt eins og það hljóta að vera til fleiri en einn írskir tónlistarmenn aðrir en Van Morrison. Dettur alls ekki í hug U2
Ekki er þetta úr The Good Thief ?
Annars eru vissulega fleiri Írskir leikstjórar en Neil Jordan. Til dæmis Jim Sheridan sem gerði My Left Foot og In The Name Of Father.
Það mun rétt vera. Þetta er hin fantagóða og grátlega gleymda Good Thief. Drullist út á vídeóleigu og leigið hana. Frábær mynd.
Fer út á videoleigu. Man ekki hvernig á að leigja spólu og labbar heim aftur
Já, ég gleymdi þessu næstum því....
Allaveganna, hér kemur sena!
Maður einn fer á klósettið og sest á setuna og er með heiftarlegan niðurgang. Kvenmaður er í sturtu á sama tíma í þessu sama baðherbergi og byrjar að flýja út. Allt í einu tekur hún eftir hring í hendi hans og telur hann vera að biðja sig um að giftast sér og verður einkar hamingjusöm við það. Ekki er ljóst hvort þetta hafi verið ætlun mannsins en þau enda engu að síður á því að gifta sig.