Neibb, hvorugur þeirra lék í myndinni...
Neinei (Family man er reyndar eina myndin sem ég hef nokkurn tíma gengið út af í bíó. Þessari myndi ég aldrei ganga út af, hef reyndar séð hana þó nokkrum sinnum)
Nei, hún er vel amrísk...spennumynd. Mjög frægur spennutryllir.
Ég giska á Seven.
Brad skríður upp í rúm en Morgan hlustar á taktmælinn.
Rétt hjá Fjapinu...
Ef einhver vill stela réttinum af Fjapinu...ræskir sig
Þá væri það vel þegið, er það ekki?
Maður stígur út úr vöruskemmu og stendur kyrr við götu. Skammt hjá sér hann bíl þjóta framhjá á ógnarhraða. Bíllinn veltur og fer í klessu. Síðan kemur sendiferðabíll eftir götunni og stoppar. Ökumaðurinn skilur eftir sig rafmagnsorgel og keyrir á brott.
Jahá ... þú kemur um af fullum krafti, herra forseti. Þetta er náttúrulega ekkert annað en kórrétt.
þetta var nú of fljótt leyst.
Ég fékk ekki einu sinni tækifæri á að reyna!
Jahá ... þú kemur um af fullum krafti, herra forseti. Þetta er náttúrulega ekkert annað en kórrétt.
Ég er konungur, ekki forseti.
Svona er að vera of lengi í burtu. Menn gleyma titli þínum og völdum.
Dustar rykið af ráðherra- og embættismannalistanum og tekur til við upprifjunarlestur
Örminnis vídeóleikjakynslóð. Svei.
Jæja.
Aðalpersóna keyrir á bíl um holt og hæðir. Bíll er að elta hann. Þeir keyra nokkuð geyst. Aðalpersónan beygir í nokkuð krappri beygju. Sá sem eltir er ekki nógu fljótur að bregðast við og skransar fram að brúnni og klessir lauslega á bílahandrið. Bíllin fer með eitt dekk fram yfir brúna. Hann bölvar.
Aðalpersónan kemur síðan að þeim sem var að eltast við hann, hendir góðlátlegt grín að honum og aðalpersónan skutlar eltara sínum niður í borg.