Hvæsi!
ÞYYYYRLAAAAA
Lokar augunum
Bomm bomm bomm
Hendir nærbuxum í Ívar
Verður fyrir nærbuxum
Ekur um á nærhaldinu
Kíkir inn um gluggann og veltir því fyrir sér hvort búið sé að loka Nærbuxunum, en þær eru skemmtilegri opnar.
Kveikir ljósin
Ég sé að hér þvælast Gestapíur um á nærhaldinu einu. Þykir mér sem skemmtanalífið hér hafi tekið stórstígum framförum.
Gengur út úr horninu með nærbuxur í hönd.
Hver á þessar? Og hversu lengi má bíða eftir afgreiðslu á barnum?
Lögð eru fram drög að tillögu þess efnis að allar öryggismyndavélar verði bannaðar á Nærbuxum. Sérstaklega talandi öryggismyndavélar.
Opnar dyrnar á Kaffi Blút og ætlar að kíkja út, sér þá að hann er kominn inn á Skemmtistaðinn nærbuxur. Lokar dyrunum, opnar þær síðan hægt og sér Frelsishetjuna
Hrökklast aftur á bak og hrasar við inn á Kaffi Blút
Lögð eru fram drög að tillögu þess efnis að allar öryggismyndavélar verði bannaðar á Nærbuxum. Sérstaklega talandi öryggismyndavélar.
Tillaga er studd af Fergesja.
Innköllun
Með úrskurði Hæstaréttar Baggalútíu kveðnum upp í dag voru Nærbuxur úrskurðaðar gjaldþrota. Sama dag var undirritaður skipaður skiptastjóri í þrotabúinu. Þeir sem telja sig eiga kröfu á hendur þrotabúinu skulu lýsa kröfum sínum áður en of langur tími líður. Gera má ráð fyrir að eignir þrotabúsins verði seldar hæstbjóðanda. Áskilinn er réttur til að selja eignirnar hverja í sínu lagi.
Vænta má þess að skiptastjóri muni lýsa yfir riftunum, ef í ljós koma við skoðun á þræðinum ráðstafanir sem telja verður ótilhlýðilegar.
Til sölu úr þrotabúi Nærbuxna
Til sölu er úr þrotabúi Nærbuxna almenningssími fyrir mynt. Allnokkuð virðist vera af mynt í skúffu símans, sem fylgir með, ef vill. Einnig er til sölu heildarsafn karlnærbuxna, óhreint, sem dagað hefur uppi (óskilafatnaður, verður seldur nema einhver geti sannað eignarnærhald sitt).
Upplýsingar óskast um Kaffiblútsblandara sem til var í búi Nærbuxna. Við rannsókn á bókhaldi félagsins kemur í ljós að keypt hefur verið framangreind blútvél, en hún finnst ekki í búinu. Allar upplýsingar eru vel þegnar um hver hafi orðið afdrif þessarar vélar.
Hugðir, Nærbuxnaskiptastjóri.
Íhugar að kaupa notaðar Nærbuxur, en finnur einhvurn óþef af málinu