Vandræði Vaílu Veinólínó?
Rétt var það Bilhjálmur. Boltinn til þín, hvort sem þú ert í Garðaríki eða á Háabarði.
Í hvaða bók kemur búmerang við sögu, og hvernig?
Jæja, skyldi vera hægt að endurvekja þennan góða leik?
Var það ekki í "Tinni í Ameríku" sem bófinn notaði bjúgverpil til þessa að þagga niður í leigubílstjóra og stal síðan lögreglumótorhjóli?
jú þetta er rétt hjá sundlaugi.
Hoppar hæð sína og syndir 200 metra flugsund af hrifningu
Það var mikið...
Í hvers eða hverra eigu var Myllusetur áður en Kolbeinn kafteinn eignaðist það?
Bófarnir Þröstur og Starri áttu það, sbr. Leyndardóm einhyrningsins.
Tekur upp gjallarhorn og tilkynnir:
OG ÞAÐ VAR RÉTT...
Hvað hjet bókin sem Kolbeinn kafteinn 'las' sjer til ánægju á leið til tunglsins og hvað var athugavert við bókina ?
Þetta var einhver hávísindalegur lærdómstitill en „bókin“ var í raun viskíkassi. Ég man því miður ekki lengur titilinn. Mér er farið að förlast. Brestur í óstöðvandi grát
Hmm. var þetta ekki Handbók í stjörnufræði?
Það tilkynnist hjer með opinberlega að Upprifinn er hjer með formlega kominn með spurnarrjettinn í ljósi þess að svar hans er rjett.
Hver er eldri kona sem ætti að tala virðulega um?
Ef vjer munum rjett er það systir Vandráðs (sem er að vísu ekki til).
Rétturinn er orðinn yðar að nýju.
Hvaða dulnefni hefur Rassópúlos notað ?
Gorgonsóla Markgreifi?
Rjett; rjetturinn er á ný yðar.