Vjer óskum Vladimir til hamingju með rétt svar og réttinn.
Ljómar upp
Hver var í rúmínó, hvað var það og af hverju var það slæmt ?
Senjor Lúmínó er í rúmínó, ef ég man rétt.
Og þar sem hann var löðreglustjóri, þá gat hann ekki aðstoðað Tinna og Kolbein við að rannsaka skipið sem var með sóttveikifánann í Fangarnir í Sólhofinu?
Hann var sem sagt sofandi í rúminu sínu.
Vjer munum enn frasann ljóslausa lögreglulúða hjá ónefndri reiðri persónu í tengslum við þetta.
Þetta er hárrjett og er spurnarrjetturinn þar með formlega yðar.
Hvort eyra skurðgoðsins var með skarð, og hvaða þjóðflokkur átti skurðgoðið?
Mig minnir að skurðgoðið hafi verið með hæra eyrað brotið og að þjóðflokkurinn hafi heitið Arúmbæjar... eða eitthvað í þá áttina.
Jú, það er bara alveg rétt.
Þeir hétu Arúmbar en Sulli á samt réttinn.
Hana nú, hér vantar spurningu...
Hvaða farartæki hefur birzt á bókarkápu tveggja Tinnabóka?
Gæti það verið tunglflaugin hans prófessors Vandráðs?
OG ÞAÐ VAR RÉTT...
Hver leikur Kolbein Kaftein í nýju Tinnamyndinni?
Mér finnst myndin sú ekkert hafa með Tinna og Hergé að gera og því ekki eiga erindi í þennan leik.
Rangt svar.
Andrés Serksson.
Það þygg ég hins vegar sem rétt og gott svar.
Þykir þá hyggjandi að biðja Hlégest nýrrar spurningar?
Allar Tinnasögunar eru hefbundnar spennusögur, fjalla um baráttu Tinna og vina hans við glæpahyski sem í lokin hefur betur með því að láta fléttu höfundar ganga upp. Nema ein bók, hún er farsi. Hvaða?