Meira um þessa góðu frú, ort undir sama hætti
Hún krefst þess nú að ég kýl´ana
Ég er bara ekki að fíl´ana
í görn sína treður
hrágúmíreður
stólpípu og kallar á stílana
Smá vörn til heiðurs frú Eydal:
Hún Eydal sú frú er jú sómakona
sæða hana þú átt að vona
gat sett á smokk
svo farð'á brokk
og barn í settu já rétt sísvona
Stálpaða stúlkan hún Guðríður
uppá talsvert stuð bíður
Englarnir vokka
í kringum og strokka
þegar að henni Guð ríður.
Von ein nú brýst í brjóstkassa
bera vill hann sig og flassa
passa þig vinur
vertu ei linur
kjamsar og kyssir hann rassa
Á Skabba er skrýtinn mjög limur
hann skrumar og frussar og rymur
ef semur hann ljóð
þá flissa þau fljóð
finnst þeim mjög fáum hann fimur
Hann Dóri er framsóknarfursti
þó fíflin all oft á hann hlusti
En Davíð er gæi
í mjög góður lagi
þó læknar út líffærum dusti
Ég trylltist í miðri messu
Magga ég lamdi í klessu
hvar sem ég er
hvert sem ég fer
lendi ég þráfalt í þessu
Sé eg í hyllingu stóra
sjókarla mikla, fjóra
bera þeir buru og fleira,
bugspjót af skipinu Geira
og heljar mikinn stjóra,
Hallgrímur misst hafði von um
að hátta með allsberum konum
í lófann þá tók
lókinn og jók
hraðann uns bræddi hann úr´onum
Menn telja mig tæpan á geði
trúa því ekki sem skeði
kviknakin lá
kona mér hjá
Móðir Theresa titrandi af gleði
Hún Theresa móðir mín þagði
þegar guð henni svaraði að bragði
hér þú titrandi liggur
og tittlinga þiggur
og til blessunar yfir það lagði
[í tilefni af nýfengnum fréttum um" Hestamann" í Þorlákshöfn]
Mild var hún Móðir Theresa.
Má það í sögunum um lesa.
Svo mild og svo hrein.
Hún svaf oftast ein.
Nema þegar hún hafði mök við Blesa.
Með flugi til Íslands ég fór
með fimm þúsund lítra af bjór
af löggunni tekinn
úr landinu rekinn
en sénsinn á sjónum er stór
Þráðurinn latur er þessi
og þokkalega valtur í sessi
ég bogra nú við
að bæta hér við
svo baggalútsstjórnin hann blessi
Pundinu í píkuna hjassinn
potaði harður en trassinn
tróð þar svo fast
að fyllingin brast
og frökenin fékk það í rassinn
Hér finnst mér fullmikill sori
mér líður sem fullur af slori
sé ég nú, svei.
Þið aumu grey:
Héðan greitt sprettið úr spori!
Ég drattaðist beygður á ball, en
brátt tók að hýrna það rall, en
lá þó við sjokki
er lenti í kokki
á langömmu Woody Allen.
Einn yfir búsi í bar-ró
sat beygður en feginn að var ró.
Þar lapti af stút
(uns þeir leidd'ana út)
langamma Miu Farrow.