ágætis gisk en....
ég endurtek seinustu vísbendinguC***** A** H*****[color=red][/color]
Nú þegar ég hef loksins haft fyrir því að rifja upp spurninguna, þá giska ég á Bender, úr Futurama.
Djöfull maður, mér datt í hug Johnny Bravo en það er náttúrlega vitlaust og mig grunar það, en þankagangurinn er sá sami.
hugsa svo, hugsa!
söguhetjan hefur hvorki sést í imbakassanum né á hvíta tjaldinu en er fastagestur í Nexus.
Æ. Af hverju sá ég þetta ekki fyrr.
Calvin í Calvin og Hobbes?
Bókmenntir og listir.
Hver ritaði skáldsöguna Sjóarinn sem hafið hafnaði?
Var það ekki suður-amerískur höfundur frekar? Man ekki hvað hann heitir/hét.
Gott gisk, en ekki rétt. Hemingway skrifaði Gamli maðurin og hafið (ef það er réttur titill á Íslensku).
Umræddur rithöfundur er að sjálfsögðu japanskur.
Hvað hét þessi sem risti sig á kvið fyrir nokkrum áratugum síðan? Ekki var það hann?
Jú hú Haraldur minn, sá er maðurinn. Þá er bara að muna nafn hans.
En ég get ekki fengið rétt fyrir þetta því ég man ekki hvað hann hét. Man bara að hafa lesið um þetta í Vikunni á sínum tíma. Ég berst við freistinguna við að fara í Google....
Jújú segjum það. Höfundurinn hét Yukio Mishima. Nett bilaður náungi.
Hann var að eitthvað ósáttur við spillingu japanskrar menningar og yfirgengileg áhrif erlendra menningarstrauma.
Hann fór nefninlega að æfa bardagaíþróttir og varð gagntekinn af einhvers konar púrisma, líkamlegum og andlegum. Náði góðum árangri, varð meistari í Akídó og Kendo. Safnaði í kring um sig trúarhóp og þeir hertóku höfuðstöðvar japanska hersins einn daginn. Þar las Mishima upp yfirlýsingu og framdi Seppukku. Á sama tíma kom út síðasta bókin hans. Gott auglýsingatrix eh?
Jújú segjum það. Höfundurinn hét Yukio Mishima. Nett bilaður náungi.
Var Barbie ekki búin að svara þessu rétt? Hennar innlegg hvarf á dularfullan hátt.