Allir ættu nú að þekkja leiðinlegustu íþrótt í heimi.
Hættu nú að hallmæla öllu, næst muntu segja að Curling sé leiðinleg.
Þú ert líka þekktur fyrir að vera ávallt fúll á móti.
Jæja, Frelsishetja loksins kom eitthvað af viti frá þér.. þetta var reyndar S-Kórea, en þú sleppur svona í fyrsta sinn, enda litlar líkur á því að hið lokaða land N-Kórea taki upp á því að vera með íþróttamót.
Dragðu nú fram alla þína einlægni og sannleiksþrá og komdu með spurningu sem er ekki tóm steypa..hmmm?
Nei Frelsishetja, það mun ég aldrei gera. Krull er íþrótt í hæsta gæðaflokki.
Þetta er sérstakt tilraunaverkefni á vegum Menntmálaráðuneytis Baggalútíu og er tilgangurinn að uppfræða alþýðuna með einskisnýtum fróðleik...
Mér finnst þetta vera bara gott hjá Tinna. Tinni, ég er stoltur af þér.
Og vonandi verður þetta eigi eyðilagt með aulahúmor, því hann getur verið stórhættulegur. Punktur
Þú gleymdir að gera punkt á eftir punktur.
Jú, þetta er kórrétt athugasemd hjá þér, Barbie!
Þetta lítur þá svona út:
1. Landafræði
2. Dægradvöl
3. Saga
4. Bókmenntir & Listir
5. Vísindi
6. Íþróttir & Leikir
Æi, nú er greinilegt að skyndileg notkun æðsta líffærisins hefur greinilega gert út af við Frelsishetjuna
Og því ekki að bera upp skítlétta vísindaspurningu:
Hvaða pláneta hefur fylgitunglið
Ganýmedes?
Svona svaraðu nú Díó, þú varst nú alltaf mun betri í þessum árans plánetum en ég.
Ég giska samt á Júpíter.
Ég var að semja vísbendingu í bíófrasaleiknum. En þetta er nú góð ágiskun hjá þér.
já, þetta er barasta fullnægjandi ágiskun hjá þér! Og berðu nú upp næstu spurningu, litli pabbastúfur![/s]