Mér þykir Kringlan vera skárri kostur en Typpalind. Lýsingin er ekki eins skerandi, það er langtum meira úrval af ruslfæðisstöðum og betri búðir sem henta mér. Með betri búðum á ég við að það er betri bókabúð, ég stunda aðrar búðir ekki mikið í þessum verslunarmiðstöðvum nema kannski Skífuna og BT en þær eru ósköp svipaðar hjá báðum miðstöðvum.
Ætli ég setjist ekki við skriftir hvað og hverju.
Búðir í heild sinni eru illar
Heppin er ég að tígrisdýr þurfa aldrei að kaupa föt.
Typpalind er verri en Kringlan, en það er samt eins og að bera saman mykju og flór.
Sem minnir mig á það, ég er að fara að tefla við páfann. Vonandi tekur hann ekki franska leikinn, ég tapa alltaf fyrir helvítinu þegar hann spilar franska leikinn.
Safna liði í aftökusveitirnar...þarf svo að taka aðeins til og læra. Ojjjjj....
Best að fá sér eitthvað að borða og halda áfram að skrifa.
Reyna að koma þráðlausa netinu á nýja lappanum mínum í gang. Vantar Linux drivera.
Ég ætla að hlaupa út í snjóinn og gera snjókalla.
Jibbíííí!
vaska upp
Brjótast heim í ófærðinni (?). Leggjum vér hér með formlega til að hér eftir verði snjór bannaður á götum Baggalútíu.
Stóð sjálfan mig að því að byrja á að teikna Sítróen Bragga í leiðindunum áðan. Ég hef ekki teiknað lengi. Ætli ég klári þetta bara ekki.
Virðir fyrir sér ljósmyndina af Citroeninum og reynir að fanga 'firringuna'.
Sitja lengur en orð fá tjáð á kaffihúsi, nethórast og Baggalútast þar til ég dett niður dauð.
Hætta þessu kjaftæði og fara að vinna.