Ef við tækjum upp þann sið að fólk ætti síðasta orðið þ.e. veldi áletrun á sinn legstein. Hver yrði ykkar?
Á mínum gæti staðið...
Ég lést þó margt væri óunnið í jafnréttismálum, skildi ég ganga aftur?
Til að fá enn meira fjör í leikinn geta menn komið með uppástungur fyrir aðra Baggalúta.
Á legsteini exit gæti eftil vill staðið
"Farinn, kem aldrei aftur!"
Hinsvegar kæmi til með að standa svo mikið á mínum legstein að það verður ekki tíundað hér. Gæti eftilvill byrjað eitthvað á þessa leið:
"Leibbi Djazz ástkær Bjúrókrati Nefndamálaráðuneytis . . . etc. etc."
Mér dettur bara í hug brandarinn um hjónin sem voru að rífast. Hann stakk upp á grafskriftinni "Hér liggur kellingin, köld eins og alltaf" fyrir hana.
Hún svaraði að bragði að hans grafskrift yrði "Hér liggur kallinn, loksins orðinn stífur".
Hér liggur Leibbi Djazz..loksins rólegur.
Hér liggur Semmning Semmningsen. Topp maður þar á ferð.
Þar sem ég er einbúi og heldur breiður, þá þykir mér ólíklegt að grafskrift mín verði nokkur, nema ég holi mér niður sjálfur en nenni varla að grafa. Dæsir mæðulega og lítur ofan í tómt glasið
Kemur upp í hugann: "Hér liggur Feiti Einbúinn...og hér ...og hér...og hér...o.s.frv.
Jah, ég ákvað mína grafskrift margt fyrir löngu:
"Glúmur er dauður - lengi lifi Baggalútur!"
Í ljósi þróunar mála í alþjóðasamfélaginu þá mætti líka hafa hana:
"Glúmur er dauður - lengi lifi Baggalútía!"
"Hér hvílir Nykur ásamt Leiu prinsessu og Sirrý"
Hér hvílir einhver óheppinn náungi sem var fenginn sem staðgengill fyrir Blástakk.
"Hjálpaðu mér upp" er náttúrulega ansi kröftugt á legstein í kikjugarði.
"Better Off Dead"
Það væri ansi flott að hafa síma á gröfinni og yfirskriftina "Símtöl verða afgreidd í réttri röð"
eða dyrabjölluhnapp og skilti: styðjið á hnappinn og bíðið þar til röðin kemur að ykkur