Bætir einni við svona til öryggis
Terroristarnir eru alls staðar!
Stríð gegn hryðjuverkum!
Svei mér þá ef hann hefur ekki bara rétt fyrir sér, Færeyingurinn.
Þaggið niðrí þessum manni!
Auðveldast er að þekkja óvini Ríkisins á því að þeir tala ekki Baggalútísku.
Sammála stríði við Skota en fáum færeyska sjómenn í lið með okkur...
Kemur inn með tvo færeyinga í eftirdragi og hengir upp til þerris
Þetta var til bóta. Við vorum að verða uppiskroppa með þá.
Kemur auga á færeying við barinn
Ha? Hvað er í gangi?
Tekur niður gleraugun og nuddar augun til að sjá betur. Skoðar brillurnar í leiðinni og fullvissar sig um að glerin séu hrein.
Hvert í sjóðandisandblautaheitastahelvítisanskotansdjöfullsdjöfli á þetta að þýða?
Af hverju er ekki búið að hengja hræið til þerris?
Stekkur á færeyinginn og hengir upp í hvelli með hinum til þerris.
Notar Færeyingana sem píluspjald
Vaknar upp af skelfilegri martröð og finnur mikið til í upphengjunum. Losar sig af snúrunni
Hvur andskotinn er þetta? Hvur leyfði sér að hengja oss upp?
vonandi er eitthvað að marka þetta því ég er orðinn lang þreyttur á þessu kjaftæði
Ég tel að óhætt sé að setja Google á listann ógurlega yfir óvini ríkisins í rökréttu framhaldi af nýlegum og óvefengjanlegum upplýsingum.
Eitthvað verðum við allavega að gera í sambandi við þetta risa stóra og ógurlega samsæri.
Ek legg til að Búrkina-Fasó og Sólómoneyjar verði sett á listann yfir óvinaþjóðir Baggalútíu! Þrefaldar ríkissjóð Baggalútíu
Einnig legg ek til að Baggalútíumenn og Japanir varpi Kínverjum á Slóveníu.
Ég legg til að Myanmar verði sett á lista yfir óvinaþjóðir Baggalútíu!
Ég legg til að Túvalú verði sett á óvinaþjóðalistann. Það er enginn þar núna og þetta er svo langt í burtu!
veitir óheftu fjárstreymi úr spillingamálaráðuneytinu til forsetaskrifstofunnar
Ég legg til að listanum yfir óvinaþjóðir Baggalútíu verði fargað. Í staðinn verði settur saman listi yfir vinaþjóðir, ef slíkar finnast. Þetta mun einfalda mjög störf ríkisstjórnar vorrar og forseta og spara tíma. (Það er mikil vinna að vera krútt).
Hvað í dauðanum er þetta!?
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1080275
Ég segi bara beinustu leið til Hríseyjar með þetta fólk.
Halda mætti, að téður krónprins sé um það bil jafngamall móður sinni; að nálgast sjötugt. Það er naumast, hversu hann heldur sér vel.
Farið er fram á að Slóvenía sé tekin af lista óvinaþjóða Baggalúts. En þar sem ég er nýgræðingur hér býst ég harla við að hlustað verði á þessa beiðni.