Þegar þú hefur skráð þig inn og sett inn a.m.k. ein skilaboð á vefinn - þá velur þú "UPPSETNING" efst til hægri á forsíðu spjallborðsins:
http://baggalutur.is/profile.php?mode=editprofile
Þar neðst finnur þú "Stjórnborð fyrir myndir"
Til að velja mynd smellir þú þar á "Sýna myndasafn"
Ef ekkert þar hentar þér getur þú reynt að sérpanta mynd með því að senda beiðni á enter@baggalutur.is - ég bregst yfirleitt vel við og set mynd inn við fyrsta tækifæri.
------
Myndasafnið er uppfært reglulega. Athugaðu að ef þú hefur einungis sett ein skilaboð á spjallborðið, valið þér mynd og skrifar svo ekkert svo vikum eða mánuðum skiptir - áskilur ritstjórn sér að 'frelsa' myndina svo að aðrir skrifglaðari gestir geti nýtt sér hana.
Lifið heil.
Mikið skelfilega ertu skilmerkilegur Enter.
er mögulegt að nota eigin mynd og ef svo er, hvernig sný ég mér í þeim málum?
þú snýrð þér öfugt og til Enters Prenters.
Sendu gaurnum sem hóf þennan þráð póst og hann væntanlega leysir vandann. Og við erum öll með eigin mynd hérna því hér er bannað að sigla undir fölsku flaggi.
Af hverju breytist Vamban stundum í Admiral? Horfir grunsemdaraugum á Galdrameistaran
Vertu ekkert að góna á mig. Það er einhver annar að pota í Enter(takkann) Blótar herfilega og rífur hár sitt
Af hverju breytist Vamban stundum í Admiral? Horfir grunsemdaraugum á Galdrameistaran
Ekki vera með útúrsnúninga þetta er grafalvarlegt mál sem þarf að fá svör við sem allra allra fyrst.
Hættið að vera sífellt að skipta um myndir. Fer í fýlu
já, og ég neyðist til að vera sammála hlewafíflinu...
Frelsishetjan
3 innskráðir alls
Þetta er eitthvað sem vert er að skoða!...
Þú kannt bara ekki að telja. Það liggur í augum uppi. Það væri nú samt æskilegt að þetta væri lagað í næstu útgáfu af alheiminum.
Ég er með mynd. Það er svalasta myndin af þeim öllum. Fyrir utan nokkrar, og þið vitið hverjir þið eruð.
Ég er með mynd. Það er svalasta myndin af þeim öllum. Fyrir utan nokkrar, og þið vitið hverjir þið eruð.
Tjah, ég veit svona nokkurnvegin hver ég er.
-
Ertu nú alveg viss Limbri minn? Ég veit hver ég er en það er alveg spurning með þig. setur gel í hárið og lætur það standa út í loftið
Ertu nú alveg viss Limbri minn? Ég veit hver ég er en það er alveg spurning með þig. setur gel í hárið og lætur það standa út í loftið
Jamms, þetta er alltsaman í úrvinnslu. En ég er samt nokkuð viss núorðið.
-
Ég get staðfest að Limbri veit hver hann er. En ég velti þá fyrir mér, er Ívar Ívar og ef ekki, hver veit þá hver Ívar er?
Ég held að ég komi mér í var!
Þið eruð allir hugar fóstur mín svo að þið getið ekki verið með meðvitað sjálf.