Animus meus maior est
mögulega á landi flest.
Sicut iste, poesia mea
fer sennilega beint í ruslatuuuunnunaaaa.
Villi vildi ást sýna
og fjölg'í ættinni Wium
Bomm er núna Ólína
Quot erat demonstratum
Við þjóðbraut í þýzkum bæ
þreyttur ég háttum næ.
Ég spyr þar og hróðugur hlæ:Haben Sie Zimmer frei?
Á staðnum var stúlka ung.
Ég starði, dró augað í pung:
Hvað gerið þér hér?
Og hún svaraði mér:"Zimmervermittlung."
Skoðun mín á hnefaleikum er sú
Að íþrótt þessi heita megi úr kú
Ég segi eins og Draco
Sem drakk boll´ af kakó
og tautaði svo: I must break you.
í sælureit um sumardag
við sátum tvö og drukkum púns
af nautn - og sungum nýþýskt lag
von 99 Luftballons
Ég kýldi kerlu mína fast
klippti hárið hennar knappt
fékk að lokum flogakast
und alle leute, gute nacht
Ég læt, ég fæ
ég græt og hlæ
ég ríð, ég ræ
Arbeit macht Frei
Ég hef ekki ort
áður slíkan lort
Orðheldni er sport:Ein Mann, ein Wort.
Ég fíla flöskuleka
og fé um dal að reka
en fagra snót að fleka
das Alpha und Omega
Farðu dóni í fúlan pytt
farðu og gerðu síðan “hitt.”
Mitt er þitt og þitt er mitt“Mein herr, Helmut Schmidt.”
Óreiðu-Jón vildi Viggu fá
fannst'ún svaka væn
En hún vild'ann ekki sjá
"Ordnung muß sein !"
Árans innlegg þitt er
ógeð eins og fitl er.
Jeg drekk Jaeger bitter.
Jawohl, mein Herr Hitler!
Klökkt er í kvikmyndasal.
Kveðja í táradal.
Filmdrottning fallin í val,
Frau Leni Riefensthal.
Paradís er pottþétt þín.
ef peninga nóga þú hefur.
Stelpur í röðum og fimmstjörnu vín,
Strawberry fields forever.
Hokinn af leiða að heiman ég fór,
í handtösku geymdi mitt dót.
Gekk útí myrkrið gugginn og sljór
Good bye Yellow Brick Road
Gekk ég ungur yfir sjó og land
inn í samband og í hjónaband
Þreyttist síðan, súrt var þetta stand.
Seargent Pepper´s Lonely Hearts Club Band
Gerist rómantískur
Svífur yfir Esjuna sólroðið ský
sindrar viskíglasið á barnum á ný
Langt er síðan hef ég litið við því.Lady in Red is Dancing with Me.