Lappi er úti að synda með seinnipartinn sinn svo ég stekk yfir hannstekkur yfir Lappa
Út um höfin hraðar för
á heljarbáti sínum
fagra mærin æst og ör
með yngri bróður mínum.
Nú er komin nóttin dimm,
nær skal rekkju vitja?
Nú er komin nóttin dimm,
nær skal rekkju vitja?
Korter yfir klukkan fimm,
koma og hjá mér sitja?
(Þú gafst mér nú lítinn séns á einhverju krassandi með þessu rími)
Ég á síma, sjónvarpsvél,
svaka ofurtölvu.
Þiggja bændur bitlinginn
brestur alveg vörnina
taki út einhver tittling sinn
tjasla þeir við görnina.
Gestur væni giska þú,
gæti landið orðið betra?
Nýhenda. Auðvitað mega allir botna.
Gestur væni giska þú,
gæti landið orðið betra?
Já ef hér væri engin trú,
yrki ég í skjóli letra.
Nýhendan er gamalt grey
en gaman þannig er að kveða.
Nýhendan er gamalt grey
en gaman þannig er að kveða.
Siggi Breiðfjörð býsna gay
og brattur vildi stíl þann fleða
Nýrri línu hendi hér
hef þó ekkert gott að bjóða
Nýrri línu hendi hér
hef þó ekkert gott að bjóða
,,vinur gamli viltu smér?"
varla nenni fisk að sjóða.
Éttu það sem úti frýs!
orti mamma forðum,
Éttu það sem úti frýs
orti mamma forðum
Fallegur er fjallagrís
Frosin samt ei borðum
Tottar frúin tittlinginn
tælir hann og gælir
Tottar frúin tittlinginn
tælir hann og gælir,
rýni yfir ritlinginn
ruddaskapinn kælir.
Kokið ekki kæfa má
konan vill nú anda,
Kokið ekki kæfa má
konan vill nú anda,
þraukaðu þar til hún umlar "já"
og þér er hætt að standa.
Klámhundur ég orðinn er
ekki líst mér á´ða
Seinni partur Grilla ekki samkvæmt reglum. Stekk yfir hann stekkur yfir Grislinginn
Kokið ekki kæfa má
konan vill nú anda,
Ef með nefi hún andar þá
allan leysir vanda.
Drottinn viltu veita mér
væna konu í bólið?
Klámhundur ég orðinn er
ekki líst mér á´ða
Kött og hund nú kalla ber
komið þið með báða
Poka prestur kveður á
kviðlinga og bögur
Vatnlaugur Sundi
ok
Drottinn viltu veita mér
væna konu í bólið
Sérlega í séniver
sértu enn með hjólið
Aftur endi alltaf er
aftantil á öllum
Drottinn viltu veita mér
væna konu í bólið?
Held ég erfitt yrði mér
einn að sjá um tólið.
Sokka bleika sá á þér,
sannarlega brugðið!
Þetta er nú komið út í vitleysu...
Hrökklast aftur á bak og tek um höfuð mér. Mærin hefur lög að mæla. Ég er farin út núna. Þarf aðeins að skreppa
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Fyrripartur Leirs var ofstuðlaður og fyrripartur mærinnar er fyndinn svo þar tek ég upp þráðinn. Svo var nú botninn hennar líka óborganlegur.
Sokka bleika sá á þér,
sannarlega brugðið!
Sástu það já, því er ver,
þá er betra að vera ber.
Kyndugt er hér kvennastóð
kemur mér á óvart.
Kyndugt er hér kvennastóð
kemur mér á óvart.
Kveikir í mér köldum glóð,
klofi líka sumpart.
Lokkaprúð en leiðinleg
léleg, miður ágæt
Breytti, var ofstuðlað.
Uss þetta var slappt...