Núh!? Á hvaða stöð? Ég þurfti að leigja mér hana fyrir formúu.
Ripley's Game er rétt. Tók áhættu þar sem ég fjallaði um hana í bíóglápsþræðinum.
Ég man nú ekki hvar, sennilegast bíórásinni - sá einmitt nokkurn veginn bara þetta atriði sem þú spurðir um. Hafði raunar séð hana áður.
En jæja:
Það sem ég er að reyna að segja, held ég, er að ef ég get breyst - og þið getið breyst ... þá geta sko allir breyst.
Hljómar eins og þetta sé úr Suður garðinum?
Hmmm sko gæti þetta nokkuð verið hann Rocky Balboa að tjá sig þarna..mynd 3 eða 4.
Þá er þetta Disney... þetta hljómar svo væmið að ég segir "Voldugu Endurnar"
Hmmm sko gæti þetta nokkuð verið hann Rocky Balboa að tjá sig þarna..mynd 3 eða 4.
Jújú. Þrátt fyrir að þetta sé í grunninn sama myndin væri gott að fá nákvæmt svar, svona upp á prinsippið.
Segjum bara Rocky IV. Herra minn.
„Hey ég er sko ekkert vond, ég er bara teiknuð þannig"
Var það ekki frú Jessica Rabbit sem mælti þessi orð (og var þá frekar vond en vondur) í Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu?
Myndin er rétt..tilv. "I'm not bad, I'm just drawn that way." Mundi bara ekkert hver sagði þetta.
Flokkurinn minn. Flokkurinn minn er DAUÐUR. Þeir vissu að við værum að koma, maður. Þeir vissu að við værum að koma - og diskurinn er horfinn.
Er þetta ekki pabbi Suri í „Óframkvæmanlegum verkefnum I"
Þú hefur verið vegin, þú hefur verið metin og léttvægur fundin. Í hvaða veröld gætir þú mögulega sigrað mig
Ég veit! Ég veit! Hoppar eins og bjáni.
Þetta ku vera Saga Riddara. (A knights tale)