RÉTTARÞJÓFUR! mundar stinginn í átt að Finngálkni
Er ekki hægt að kæra þetta til viðeigandi aðila?
RÉTTARÞJÓFUR!
Er ekki hægt að kæra þetta til viðeigandi aðila?
Kæran hefur verið móttekin og yfirfarin. Niðurstaðan er sú að þú átt enn réttinn, hvað sem apalátunum hér fyrir ofan líður.
Auðvitað! skálar fyrir að réttlætið hafi sigrað xTxT
Minn frasi hljómar nokkurn vegin svona í íslenskri þýðingu:
Stjúpmamma þín er samt sæt.
Þegiðu!
Manstu þegar ég bauð henni á lokaballið?
ÞEGIÐU!!
Já, skál. xT
Ég myndi giska að þetta væri úr eðalmyndinni Bill and Ted's Excellent Adventure.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Góð mynd. Þyrfti að sjá hana aftur við tækifæri.
Næsti frasi er ...
Dregur miða úr hatti
- Ertu að segja að NSA hafi drepið Kennedy?
- Nei, þeir skutu hann, en drápu hann ekki. Hann er enn á lífi.
Þetta hljómar eitthvað kunnuglega, er þarna um ofurlaumulega njósnamynd að ræða?
Þetta hljómar eitthvað kunnuglega, er þarna um ofurlaumulega njósnamynd að ræða?
Hún er svo laumuleg að meira að segja nafnið á henni er laumulegt.
Þá man ég þetta rétt og myndin er Sneakers.
Rétt er það. Einnig mynd sem ég þyrfti að sjá aftur við tækifæri.
Já hún er góð, en snúum okkur að næstu þraut:
Hr Xxx [má nokkuð skrifa nöfn?], ertu að segja mér að þú hafir logið í umsókninni?
Nei! Eða já. En bara til að koma fætinum inn um dyrnar. Sýna frumkvæði og þannig.
Þetta kannast ég ekki við í fljótu bragði, en þó hringir það daufum bjöllum einhvers staðar.
Catch Me If You Can?
Nei. Myndin er eldri en hún og gerist í öðru landi.
Er þetta ekki líf og andlát Péturs Seljan Með Georg Flýti í aðalhlutverki?
Nei (enda er það ekki yngri mynd en Catch me if you can).
Þetta kemur kannski ef ég set inn aðeins meira af samtalinu:
Hr Xxx [má nokkuð skrifa nöfn?], ertu að segja mér að þú hafir logið í umsókninni?
Nei! Eða já. En bara til að koma fætinum inn um dyrnar. Sýna frumkvæði og þannig.
En þér var vísað hingað af atvinnuleysisskrifstofunni, það var engin þörf fyrir að koma fætinum inn um dyrnar, eins og þú orðar það.
Ööö kúl! Hvað sem þú segir, sorrí, þú ert maðurinn. Gaurinn í stólnum
Svooo...kunnuglegt...man...ekki...heili...bráðnar...Blótar herfilega og rífur hár sitt
Já, þetta er kunnuglegt en alls ekki þekktasta atriðið í myndinni. Þessi mynd kom út um miðjan síðasta áratug og var frekar umdeild vegna efnistaka en um leið mjög vinsæl og þá kannski sérstaklega hjá ungu fólki.
Er þetta mynd um strafsgrein sem að menn með mitt vaxtarlag fá ekki vinnu við?