Dordingull yrði fín strengjabrúða. Ekki saka heldur myndirnar sem ég hef af honum, rollunni og Dick Cheney í trekant í ónefndum sadómasóklúbb í nágrenni Washington. Þær ættu að halda honum á mottunni.
Þú þorir aldrei að birta þessar myndir því þá verð ég að draga fram albúmið með okkur úr sumarbústaðnum hér forðum og þá yrði að banna síðuna innan 6tugs.
Doktorinn panntar heilbrigðisráðuneitið. Þá verður hægt að "lækna" íslensku þjóðina. Farinnn að vinna að áætlun um genasplæsingar og kóbalt inngjöf heillar þjóðar
Það veitir ekki af því að skrumskæla sjávarútveginn, ég skal vera Sjávarútvegsráðherra, þ.e. ef engin er búinn að panta það...veiðar frjálsar öllum bátum innan við 100 tonn. Ég skal sjá til þess að iðnaðurinn fái aðgang að togurunum sem brotajárn.
Skabbi, þar sem þú ert þá sjávarútvegsráðherra vildi ég leggja til að þú gerðir marhnútaveiðar að viðurkenndu atvinnuvegi.
Hrossabrestur vill vera fjármálaráðherra.
Dollar merki kemur fram í augum $$
með samanbitnar tennur ó-ó-ókei
Skammkel í menntamálin!
Skammkel í menntamálin!
Skammkel í menntamálin!
Skammkel í menntamálin!
Er utanríkisráðuneitið laust fyrir mig?
Tel það henta afar vel svona myndarlegum manni eins og mér
Lítur í spegil og andvarpar
Haraldur Austmann er utanríkisráðherra.
Skv. lauslegri samantekt vorri lítur ráðherralisti nýrrar ríkisstjórnar núna svona út:
igor: Áróðursmálaráðherra
Hakuchi: Dóms- og varnarmálaráðherra
Mikill Hákon: Landbúnaðarráðherra
Haraldur Austmann: Utanríkisráðherra
Dordingull (?): Forsætisráðherra (?)
Vladimir Fuckov: Kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðherra
Dr Zoidberg: Heilbrigðisráðherra
Skabbi skrumari: Sjávarútvegsráðherra
Hrossabrestur: Fjármálaráðherra
Skammkell: Menntamálaráðherra
Eina spurningamerkið hér er að Dordingull vill eigi vera forsætisráðherra og er slíkt ástand líklega eigi heppilegt. Að auki eru enn nokkur ráðuneyti laus. Svo leggjum vér til að fjármálaráðuneytið nefnist fjármögnunarráðuneytið og til greina kemur að áliti voru að dóms- og varnarmálaráðuneytið nefnist dóms- og stríðsmálaráðuneytið.
Ég gef Sverfli umsvifalaust mitt atkvæði!
Ég mun stofna öryggislögregluna og verður hún undir mínu ráðuneyti. Að sjálfsögðu þarf hver öryggislögregla að hafa yfirburðarmann í stjórnendastöðu og er Sverfill prýðisgóður valkostur í slíkt embætti enda harður í horn að taka. Ég krýni hér með Svervil Bergmann forstjóra hinnar nýju öryggislögreglu íslenska lýðveldisins (skammstöfun ÖLÍS).
Ég pant ver´ann (forsætirráðherra á ég við)
Þú mátt svosum vera forsætisráðherra, eins lengi og þú ert karlmaður. Það myndi náttúrulega allt enda með ósköpum ef kvenmaður stjórnaði, enda er slíkt fólk svo tilfinningalega veiklundað. En þú verður að gera þér grein fyrir því að embættið er einvörðungu strengjabrúðuembætti. Það sem þú þyrftir að gera væri helst að klappa börnum á koll og halda skógræktarræður.
Mér er sannur heiður að taka að mér þetta viðamikla embætti.
horfir stoltur á þjóðfána vorn og merki ÖLÍS
En þú verður að gera þér grein fyrir því að embættið er einvörðungu strengjabrúðuembætti. Það sem þú þyrftir að gera væri helst að klappa börnum á koll og halda skógræktarræður.
Já, í reynd væri eðlilegt að forsætisráðherra heyrði undir áróðursmálaráðuneytið og væri fjarstýrt þaðan.
Vér veitum því núna athygli að eftir er að ganga frá því ráðuneyti er sér til þess að vinna megi kóbalt hvar á landinu sem er án takmarkana, þ.e. óskipað er í embætti umhverfisráðherra.
Þá vantar viðskiptaráðherra en það fylgir yfirleitt iðnaðarráðuneytinu og tökum vér það því glaðir að oss ef ekki berast mótmæli og/eða óskir um annað.
Þá sýnist oss einnig vanta samgönguráðherra (er e.t.v. ætti að nefnast geimferða- og fjarskiptaráðherra).