Hér er kominn nýr leikur, e.t.v. eilítið í anda RÚV þýðingaþráðsins. (Höfum við nokkuð gert þetta áður?)
Nefna skal einhverja kvikmynd og sá næsti í röðinni skráir lýsingu á myndinni. Ekki er nauðsynlegt að lýsingin passi nákvæmlega við raunverulega atburðarás ræmunnar.
Dæmi:
Falling Down
Skrifstofumaður reiðist á hamborgarastað.
Pretty Woman
Land Rover hangir upp í tré.
Er þetta ekki nóg?
Þó svo að ég hafi ekki hugmynd um að Hann Brús Willis hafi ekið Landrover uppí næsta tré . þá sá ég hann stúta þyrlu með löggubíl í sjónvarpstækinu mínu um daginn.
Glottir eins og fífl
En næsta mynd heitir að sjálfsögðu Ástir og Örlög í geimnum eða Avatar á engilsaxnesku
Útsendarar óvina ríkisins ræna avatar-mynd háttsetts Gestapóa er reiðist þessu mjög og heitir því að linna ei látum fyrr en óvinurinn fær að komast í kynni við hið ógurlega ELIPTON.
Næsta mynd er Delicatessen.
Fjallar um fátæka konu sem fer að búa til krásir úr gestum og gangandi til að eiga í sig og á, einnig fer hún útí að skera út hjálpartæki ástarlífsins úr lærleggjum sem verða gríðarlega vinsældregur fram heilaspuna
Næst á dagskrá er Terminator eða Tortím-öndin
Straumönd nokkur fær aðstoð frá Sigfúsi Stuð við að ræna tímavjel tortryggins vísindamanns. Vísindamaðurinn hyggst hefna sín með því að láta kaffæra straumöndina í risarjómatertu og verður í kjölfar þessa æsispennandi atburðarás.
Næsta mynd er Young Frankenstein.
Ungi Franklín Steinn
Hann fer offari í saumatíma og fær áðurnefndan Sigfús stuð og Ekkjuna í þarseinasta þætti til að aðstoða sig við frumlegan saumaskap úr kjötstykkjum sem Sigfús tekur svo uppá arma sína og hleypir smá lífi í tuskurnar, Franklín er eitthvað dasaður eftir þessa meðferð og skellir sér á Vog, og uppúr því hefst æsispennandi atburðarrás, full af lífi og dauða.
Næst á dagskrá eru Kjeddlingarnar í Kynlíf á Kópaskeri , eða Sex in the city
Fylgst er með fjórum miðaldra konum sem klæðast þröngum og niðurskornum klæðnaði með það fyrir augum að halda dauðataki í æskuna. Einstakur smellur fyrir fólk með elliblæti.
Næst skal lýsa myndinni Django óbeislaður.
Æsispennandi sjónarspil meistara Tarantinos. Í myndini eru menn miskunarlaust drepnir á blóðugan hátt. Allt er þó gert með góðum hug og með þá von í brjósti að réttlætið og jafnréttið sigri að lokum. Fimm stjörnu byssureykjandi vestri af gamla skólanum.
Næst: One direction 3D
Fimm hæfileikalausir, laglausir drengstaular með greindarvísitölu undir meðallagi sem væru að vinna í Bónus ef ekki væri fyrir heila herdeild af lagahöfundum og markaðsfólki, geifla sig eins og hálfvitar fyrir framan farsímamyndavélar í þeim tilgangi að hafa vasapeninga af greindarskertum táningsstelpum bara af því Simon Cowell á von á erfingja og finnst hann vanta meiri pening...
En þú veist... þú skalt samt tótallý horfa á þetta sko.
Nýtt líf.
Nýtt líf fjallar um tvo vitgranna er ógurlega krúttilega aulabárða sem eru að leita að hamingjunni, hamingjan vill ekki finnast og reyna þeir að beita bellibrögðum , lygum og fortölum til að ná henni til sín en allt kemur fyrir ekki. En karma kemur þarna og bítur þá í rassinn endalaust þar til þeir gefast upp. Týpísk Íslenssk mynd í betri kantinum.
Næsta á dagskrá Merlin
Í þessari bráðskemmtilegu þáttaröð er fjallað um ævintýri seiðskratta nokkurs Merlín að nafni á miðöldum. Seiðskrattinn þarf hvað eftir annað að ljúga, blekka og klekkja á sínum nánustu svo fólk trúi því að hann sé einfeldingur sem hreinsi hrossatað, en ekki í raun seiðskratti sem gæti fengið sjálfan Sæmund Fróða til að skammast sín, auk annara ævintýra. Frábær dægrastytting fyrir alla fjölskylduna.
Næst: Perfumé.