Svo herma sagnir að komið sje 2007 aptur.
Má þetta ? Flettir í reglugerðinni - finnur ekkert
En hvað um það, Skál!
Svo herma sagnir að komið sje 2007 aptur.
Manni finnst það klárlega þegar maður lítur loksins hingað inn eftir öll þessi ár.
Labbar, nei ég meina keyrir um á landkrúser og býður öllum hagstæð gjaldeyrislán
Svo herma sagnir að komið sje 2007 aptur.
Manni finnst það klárlega þegar maður lítur loksins hingað inn eftir öll þessi ár.
Góðir hlutir gleymast seint og betri hlutir breytast seint.
æi hvað þetta er allt saman yndislegt. en ég held samt að maður stígur aldrei í sömu ána tvisvar. einnig horfir aldrei á sömu bíómyndina tvisvar, ef þið vissuð það ekki.
Sveiflar saman einum ítölskum marengs og smyr yfir allan þráðinn, tekur svo upp kósangasið og býr sig undir að gylla hann. Jæja dúllurnar mínar er þetta nógu væmið?
Sveiflar saman einum ítölskum marengs og smyr yfir allan þráðinn, tekur svo upp kósangasið og býr sig undir að gylla hann. Jæja dúllurnar mínar er þetta nógu væmið?
Nei! Það vantar kakóið!
Leitar að leyniefninu

Stingur sér á kaf í draslhauginn í neðstu skúffunni undir Blútkrananum á Kaffi Blút og leitar örvæntingafullur að stóra fantinum
Ég var handviss um að hann var hérna í hitteðfyrra.
Brestur í óstöðvandi grát
Eitt af því fínasta með að elska náunga sinn er að sleppa við að hata hana. Ef allir væru vinir öðruhvoru og bara heilsuðust með handabandi og kinkuðu kolli framan í hvort annað og hlóu dátt og klöppuðu á lærin sín væri heimurinn mun rólegri en ella !
Nei, nú ertu að bulla. Stundum er ég innan um svo margt fólk að ef ég ætti að heilsa öllum með handabandi og slá mér á lær myndi ég missa af strætó.
Mér finnst að allir þeir sem vegna vingjarnleika og næðu ekki sínum áfangastað í tíð gætu fengið skattaafdrátt in um sanngjörn mörk þannig að hver og einn okkar ekki græddu á að vera óvingjarnir.
Heilsar Miðviku Degi með handabandi
Jæja, myndið röð! Ég ætla að knúsa ykkur ÖLL! Gefur frá sér vellíðunarstunu
Þið eruð öll æðisleg krúttifrútt.
Djöfull er þessi þráður eitthvað klístraður.
Sleikir í sig sykursúkkulaðisýrópsleðjuna sem lekur um allan þráðinn
Namminamm... Hvar er innsúlínið mitt?
Ég þarf bara að koma Nóttu minni aftur inn á Baggalút. Við ættum aldeilis að geta væmnast hérna. Fær sér karamellukleinuhring með flórsykri.