— GESTAPÓ —
Almennir ritsóðar.
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 6/3/13 14:52

Svona enhvernveginn orðaði kaninn þetta líka.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Enda var nú þessum Írökum stjórnað af stertimenni sem skrifaði einhverjar lágkúrulegustu bókmenntir í heimi, rómantískar kvennaklámbækur.

Við viljum ekki að færeyingarnir þurfi að lúta einhverjum fjanda sem skrifar einhverja af þessum andskotans kellingabókum sem er troðið ofan í kok á börnunum okkar í dönskukennslunni.

Eða færeyskum börnum í þeirra dönskukennslu. Líkt og allir vita, eftir að Jenis af Rana gerði það frægt, leggja færeyingar mikla áherslu á kynhlutverk, og hvernig þeim skal hagað. Hafa þeir sterkar skoðanir á hvað sé gagnkynhneigð, samkynhneigð og nýkynhneigð. Vilja þeir litla útúrsnúninga í þeim efnum, og helst ekki sjá neina kvenmenn, bara karla og konur.

Hin slæma danska tunga, og danir þar eftir, skortir þessa áherslu, eins og sést glögglega á kynjum dönsku orðanna, og dananna sjálfa. Annaðhvort eru þeir tvíkynhneigðir, eða hvorkynhneigðir. En, eða et.

Ég ábyrgist að ef við hegðum okkur sómasamlega, mun meirihluti færeyinga hópast að íslensku frelsurum sínum, og hrekja daninna burt.

Guð refsi danmörku.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 6/3/13 21:16

‹Starir stíft á Doktorinn› Mér þykir þú grunsamlega fróður um danska tungu... Baunskur flugumaður kannski? HA?

Það held ég nú!
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Nei, þótt tortryggni þín sé skiljanleg og holl. Í fyrndinni tókst dönum að særa mig illa á hné, og endaði ég sem fangi þeirra. Ég fékk ekkert að éta nema pylsur með brauðsneiðum, ekkert sjónvarspefni nema danskar sakamálamyndir og var auðvitað skikkaður til að læra dönsku, svo ég gæti nú betlað vindlinga útúr föngurum mínum.

Mér tókst að sleppa út við illan leik, þegar danski fangavörðurinn vildi ólmur skora á mig í fotbolta, þá gerði ég mér lítið fyrir og sparkaði beint í sköflunginn á honum og hljóp yfir þvera danmörku, sem tók mig heilar 40 mínútur. Þýskir landamæraverðir tóku við mér, og ólu mig upp sem einn þeirra. ‹Brestur í óstöðvandi grát›

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hermann Blöring 7/3/13 18:46

Ég ábyrgist heiður þessa manns. Dönskukunnátta hans kom okkur vel að notum er við börðumst sem sjálfboðaliðar í Svíastríðunum.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Hverjum þá, fyrsta, öðru eða fjórða, ég var frá í því þriðja vegna líkþorns.

Guð refsi danmörku.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 8/3/13 17:13

Kargur mælti:

‹Starir stíft á Doktorinn› Mér þykir þú grunsamlega fróður um danska tungu... Baunskur flugumaður kannski? HA?

Það er reyndar mikill kostur að þátttakendur í aðgerðum þeim er hjer eru til umræðu viti mikið um óvininn. Skorum vjer jafnframt á fleiri hjer að taka þátt í skipulagningu og framkvæmd aðgerðanna.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Hérna er eitt sem ég lærði í Svíastríðunum.

Ef maður horfir á skotgrafir dananna í gegnum byssumið, þá er ráðlaggt að garga ,,LARS!'' yfir skotgrafir danskra.

Það er gulltryggt að einhver skjóti upp kollinum og gargi ,,JA!''

Guð refsi danmörku.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hermann Blöring 11/3/13 19:03

En ég minnist þess fullur tregðu Doktor, þegar Danirnir lærðu af þessu bragði þínu og görguðu "SVEN" að skotgröfum okkar. Þó ég hafi verið erlendur sjálfboðaliði, olli ég mér næstum fjörtjóni er ég reyndi að ná taki á trefli Svens Jörgensonar og tosa hann aftur niður, því ég var ekki nógu fljótur, og Sven rann aftur niður með einni nös ofaukið. Kúlan hafði farið milli fingra minna. Enn þann dag í dag bölva ég sið hans að gyrða trefilinn inn í hálsmálið. Ef hann hefði verið laus hefði ég kannski getað bjargað honum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 12/3/13 23:52

‹Kemur sjer upp lista yfir öll dönsk nöfn sem til eru›
Með því að lesa þennan lista hátt og snjallt er til Færeyja er komið má skv. framansögðu plata alla Dani er til heyra til að gefa sig fram ‹Ljómar upp og sjer fram á óvenju auðveldan sigur›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dr. Merkwürdigliebe 13/3/13 17:22

‹Glottir og nýr saman höndunum›
Hermann Blöring, farðu beinustu leið til Kolbeinseyjar og undirbúðu fangabúðirnar, danirnir geta unnið fyrir matnum sínum við eggjatöku, kauplaust, þar til þeir eru leystir úr haldi.

Að því loknu skaltu taka upp fasta búsetu þar, til að við getum notað eyjuna í landhelgisdeilum við norðmenn. Þér er heimilt að nota danina til að reisa þér þann bústað sem þú telur hæfa.

Gangi áætlun Vladimírs upp, skal honum veitt tignin hertoginn af Hafnarfirði.

Guð refsi danmörku.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 14/3/13 22:00

Það þarf greinilega að stækka Kolbeinsey lítillega áður en af aðgerðum verður ‹Kemur með milljarða tonna af kóbaltstyrktri hástyrkleikasteinsteypu›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hermann Blöring 15/3/13 20:11

Ég mun sjá til þess danirnir reisi mér bústað sem mun ekki vera mér til skammar þegar ég býð herramönnum og dömum á borð við ykkur í innflutningsveisluna. Þar sem dönum er ekki treystandi, mun ég ráða grænlenska andspyrnumenn til matreiðslu og framreiðslu matar í skiptum fyrir danska gísla sem þeir geta þá nýtt sér í sjálfstæðisviðræðum við dani.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dr. Merkwürdigliebe 15/3/13 20:14

„Sjálfstæði“ fyrir Grænland. ‹Brosir út að eyrum, og kæfir niður hláturinn›

Það er góð byrjun, en auðvitað munum við þurfa að tryggja öryggi þeirra fyrir dönum í náinni framtíð. Námurnar í Kúlusúkk gætu orðið mjög arðbærar.

Guð refsi danmörku.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hermann Blöring 16/3/13 23:33

Þeir munu verða sjálfstæðir meðlimir Alantshafsveldisins, sem mun hafa höfuðstöðvar sínar á Íslandi. ‹Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er›

Háyfireldglæringameistari, Yfirundirvarahershöfðingi lýðveldisins, Sendiherra Baggalútíu í Bíldalíu. Dannaður já, danaður NEI!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 27/3/13 12:17

Vjer vorum að átta oss á að ástæða kann að vera til að vekja formlega athygli á að í vestri er annað landsvæði sem tengist Danmörku; er þar um að ræða Grænland. Þar er mikið um kóbalt- og plútóníumnámur ‹Ljómar upp›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dr. Merkwürdigliebe 27/3/13 17:17

Aldrei til nóg af bláu gleri, kóbaltnámunum skulum við ná.

Guð refsi danmörku.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dr. Merkwürdigliebe 29/3/13 02:25

Nema til standi að útbúa Kóbalt-Þóríum-G, sem ég hef lengi mælt með. Með slíku gjöreyðingarvopni getur Baggalútía loksins náð að yfirgnæfa erkióvini sína í Lýðræðislega Alþýðulýðveldinu Kóreu.

Guð refsi danmörku.
        1, 2, 3  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: