það tilkynnist hjer með opinberlega að svo virðist sem þeim aðgerðum óvina ríksins gegn Gestapó er staðið hafa linnulítið yfir dögum saman sje að linna, a.m.k. í bili. Núna rjett áðan gerðist sá stórviðburður að niðurstaða þess að smella á HVAÐ ER NÝTT? var eigi villa. Mistókst oss því eigi að komast með fljótlegum hætti að því hvað hjer hefur verið um að vera að undanförnu.
Heldur þú virkilega að við í félagsskapnum Óvinir ríkisins förum að segja Forsetanum hver staða mála sé hjá okkur eða fara að leka út leyilegri aðgeraráætlun okkar? Klórar sér í höfðinu
Er aðgerðaráætlunin þá enn þá í tunnunum?
Aðgerðaáætlunin er í farvatninu græningjarnir ykkar.
Í hvaða farvatni standa þá málin?
Eru málin ekki yfirleitt svo létt að þau fljóta í farvatninu?
Það má ekki taka létt á svona málum. Ég hef sett PRESSECPOL í að stífla farvegi farvatnsins og virkja aðgerðaáætlanir þar að lútandi. Ég bauð Umhverfisráðherra í umhverfismat í tilefni af þessum virkjanaframkvæmdum en hún umhverfðist alveg, svo ég lét fangelsa hana upp á farvatn og brauð. Óvinum ríkisins verður síðan drekkt í uppistöðulóninu...
Er það nú ekki full harkalegt? Er ekki nóg að girða þá af?
Það hefur víst reynst erfitt að setja upp mannheldar girðingar, a.m.k. í kringum fangelsin hérna í Baggalútíu.
Jahá, og er umhverfisráðherra enn í fangelsinu?
Er hún ekki umhverfis það?
Asssskotinn, hún er sloppin. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það hefur greinilega gleymst að setja hana í slopp með löngum samanhnýttum ermum.
Sér fyrir sér hana í slopp með löngum samanhnýttum ermum
Galar
Heldur þú virkilega að við í félagsskapnum Óvinir ríkisins förum að segja Forsetanum hver staða mála sé hjá okkur eða fara að leka út leyilegri aðgeraráætlun okkar? Klórar sér í höfðinu
Nei, það er ekkert víst að óvinir ríkisins geri það. Hinsvegar er hægt að beita öðrum aðferðum Hlerar símtöl og hefur jafnframt samband við PRESSECPOL.

Eins og sést, hafa nú þegar verið gerðar viðeigandi ráðstafanir af hálfu PRESSECPOL. Þó er eftir að yfirrtaka sterkeinda hraðalinn þeirra í CERN og beita honum blygðunarlaust á rafeindirnar sem greinilega höfðu gengið í lið með Óvinum ríkisins og framkallað böggana sem hafa verið að hrjá okkur á Internetum Baggalútíu. Hringir í yfirforingja sérsveitanna og skipar honum að ráðast til atlögu við CERN Skálar í fagurbláu Ákavíti við sjálfan sig
Pissar í farvatnið og hendir svo Offara útí
Hafðu þetta fyrir að ganga í lið með Óvinum ríkisins.