Er einhver dýrasegulmögnunarþjónusta í Baggalútíu? Ef ekki, þarf einhver leyfi til að auglýsa, veita eða selja slíka þjónustu?
Þarftu að láta segulmagna dyrnar hjá þér?
Ert að tala um stór dýr, mannapa eða minni dýr ?
Vjer fögnum mjög þessu áhugaverða umræðuefni. Ef þjer viljið gera þetta sem ódýrast mælum vjer með að hafa viðkomandi dýr í mýri þar sem mjög mikið er um mýrarrauða, þ.e. svo mikið að þau geti ekki drukkið vatn sem laust er við mýrarrauða. Önnur leið er að setja fíngert járnduft eða jafnvel ryð í fóður dýranna en sú aðferð samræmist síður nútímalegum kröfum um að allt skuli vera sem grænast og náttúruvænast.
Þegar þetta hefur gengið svona fyrir sig í minnst tvo mánuði er áhrifaríkast að fara með dýrin í mjög öflugt segulsvið, t.d. það sem verður til þegar vjer ræsum tímavjelina. Að líkindum dugar líka að komast inn í einhver af stöðvarhúsum Landsvirkjunar og fara mjög nálægt hverflum þeim er þar framleiða rafmagn. Þó gæti þurft að vera þar nokkuð lengi (minnst sólarhring) en aftur á móti dugar að vera nálægt tímavjelinni í einungis nokkrar sekúndur.
Er ekki þjóðráð að dæla bara kóbalti í dýrið?
Nú eru góð ráð dýr.
Þau eru reyndar ekki dýr fyrir flest dýr sje farin sú leið sem vjer nefnum en þetta segjum vjer þó með þeim fyrirvara að þjer hafið verið að tala um orðið dýr en eigi dýr því ef þjer áttuð ekki við orðið dýr heldur dýr verður merkingin allt önnur en ef um er að ræða orðið dýr.
Ef þjer viljið gera þetta sem ódýrast .
maðurinn var að spurja um Dýrasegulmögnun ekki ódýra.
Til lítils virðist oss, að svara þessari fyrirspurn, enda virðist Anarch horfinn.
Einhverjir aðrir kynnu hinsvegar að hafa áhuga á þessu mikilvæga og athyglisverða málefni.
Þar um leyfum vér oss nær að efast.
Gæti dýrasegulmögnun ekki einmitt komið að góðum notum við að finna búfénað, sem fennt hefur í kaf?