Vér hefðum haldið, að fjárnám þar fœlist í fjárkennzlu af flokksmanna hálfu.
Nafnið á þessum þræði gæti verið nafn á leiðinlegustu Tinna bók sem aldrei leit dagsins ljós
Kennið Enter um, nú eða Tinna. Það má einnig.
Er hægt að fara í fjarnám í fjárnámi?
Fjárnám er frekar sauðslegt hobbý, lömbin mín. Glottir eins og brottnumin rolla
Ætli Jarmi hafi sótt fjárnámið?
Mínar ær eru fullnuma.
Enda gerðum vér ráð fyrir, að þér kennduð á námskeiðum sem þessu.
Glottir eins og fífl.
Risavaxið parrukkið segir mér að þar fari einhver í sauðargæru. Kannski úlfur...
-eða sauður. Glottir ótæpilega
Ef allir hefðu nú lært meðhöndlun fjárs hjá Framsóknarflokknum værum við betur stödd í dag.
Framsóknarrisinn er stýrir Landssambandi Sauðfjárbænda gæti ugglaust kennt ykkur sitthvað um fjármál...
Var framsóknarmaðurinn Siggi á Sléttu ekki að heimta útigengið í vikunni? Sópar handarbaki í ranann
Nú þykist flokksstjórnin ekkert af þessu vita. Óttalegir sauðir eru þarna.