Gleðjist, því yður berast í dag jólakveðjur frá Efergisistan.
Vér óskum yður öllum gleðilegra jóla, með þökk fyrir árið sem senn er liðið. Baggalútía stendur æ fyrir sínu sem afdrep frá gráma hversdagsins.
Farnist yður vel á nýju ári, en vér drögum oss nú í hlé yfir hæstu jóladaga.
Bestu kveðjur,
Fergesji.
Gleðilegt jól og farsæl komandi ár. Ljómar eins og jólakerti
Golíatsfjölskyldan sendir grunsamlegar og jóla- og nýárskveðjur til gjörvallraíbúa Baggalútíu. Jafnvel til ritstjóranarmeðlima og mafíósa.
Fh fjölskyldunnar Golíat
Gengur út á hallarsvalirnar og veifar settlega
Kæru þegnar. Við konungshjónin sendum ykkur hugheilar jóla- og nýárskveðjur um leið og við þökkum innilega öll góð viðskipti, samskipti og umskipti liðinna ára. Megi jólin verða eins og þið óskið ykkur, fjörug eða róleg, árekstralaus og gleðileg, og áramótin ánægjuleg.
Gleðileg jól þið sem haldið upp á þau eins og ég. Annars bara góða helgi - hún er löng en samt mjög hófsöm. En næstu jól maður...sem minnir á gott og farsælt komandi ár. Sjáumst í teningakastinu.
Frá Hafralóni sendi ég ykkur öllum mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Til hamingju með jólin, öllsömul!
Tekur upp stóran gjafapoka og gefur öllum pakka
Gleðileg jól háir og lágir...Gulir brúnir rauðir bleikir grænir og bláir. Njótið hátíðana og verið góð við menn óg málleysingja.
Gleðileg jól. Það verður lokað í Kaubfjelaginu milli jóla og nýárs vegna vörutalningar. Fer í jólafríLjómar upp
Gleðileg jól félagar, hafið þökk fyrir góð kynni og gangið hægt um gleðinnar dyr er nýtt ár gengur í garð. Megi gleði og hamingja vera ykkar förunautur og velsæld fylgja ykkur um ókomna tíð.
Virðingarfyllst
Ísdrottningin
Það tilkynnist hjer með opinberlega að eigi látum vjer það ógert að sleppa því ekki að óska öllum hjer formlega gleðilegra jóla; er þó frá því sú undantekning að óvinir ríkisins fá eigi jólakveðjur í þetta sinn.
Opnar flugeld og sprengir kampavín
Gleðilegt ár kæru Bagglytingar!
Gestapóar athugið.
Bestu jóla og nýárskveðjur til ykkar allra.
Megi Bagglútía lengi lifa.
Huxi og Færeyingurinn.
Gleðilegt sumar... bara til þín.