Þú gætir nú líka reynt að setja pipar á girðingar og vegkanta.
Þú segir nokkuð. Steiki ég girðingarnar og vegkantana síðan?
Er þetta leið til að koma Lútnum aftur á tölvuskjáinn?
Er hugsunin sú að hreindýrin sjái um að krydda sig sjálf, ef aðgengi þeirra að kryddinu er aukin? Sáir blóðbergi og birki í vel valda mela
Það væri kannski betri hugmynd að setja saltsteina langt frá girðingum og vegköntum, þar sem hreindýrin eru ekki fyrir.
Það væri kannski betri hugmynd að setja saltsteina langt frá girðingum og vegköntum, þar sem hreindýrin eru ekki fyrir.
Þau eru allstaðar fyrir. Spæna upp landið og éta blessaða sauðkindina út á gaddinn.Urrar
Ég hélt að hreindýr væru ekki sólgin í pipar, en kannski eru kindur það.
Grunaði ekki flesta að hér yrðu margar góðar spurningar á ferðinni, en fátt um almennileg svör?Brýtur heilann vönduðu dúkabroti
Ekki tengist skortur á svörum hér gömlu sögunni um barnið sem spurt gat erfiðari spurninga en mökkur af spekingum gat svarað?
Heldur áfram í mini-golfi á skrifstofunni
Vér teljum ástæðuna vera nafn þráðarins, enda kallast hann „Golli spyr“ en eigi „Golla svarað“.
Rjett kann það að vera þar eð sje nafn þráðarins tekið bókstaflega (sem væri mjög eðlilegt) ætti einungis Golíat að tjá sig hjer.
Hvað þurfa menn að hafa til að bera til að vera raunveruleg ,,krútt"?
Var ég virkilega búinn að steingleyma þessum þræði? Lemur sig þéttingsfast í ennið með músinni
Já.
Ætti ég að biðja raunheimaleikarann að skella vetrardekkjunum undir í dag eða á morgun?
Mænir upp í bláan himininn og nusar af haustblíðunni
EF þú getur ekki gert það sjálfur þá er um að gera að biðja einhvern sem er betur gerður en þú.
Betur gerður en ég? Í hvaða fantasíuveröld lifir þú?
Gjóar á 40"spegilinn við hlið tölvuskjásins og hallar sér síðan makindalega aftur og horfist í augu við sjálfan sig í loftspeglinum
Ég er mun betur gerður en þú að öllu leiti. Ég lifi í fanasíuveröld 23-x5. Hún er í ystu mörkum Rigel stjörnuþokunar!
Vertu úti að leika Nermal.
Hvernig gekk annars í lestrarprófinu í dag?
Réttir Neraml lítið notaðan sleikjó