Hér hefur verið stofnaður nýr en löngu tímabær þráður. Ég mun hér ausa úr brunnum forvitni minnar endalausum spurningum og vangaveltum. Öllum sem geta varpað ljósi á umfjöllunarefnið eða álitamálið eru skyldugir að svara. Að við lögðum refsingum. Ég veit ekki hvernig refsingum og þið viljið ekki vita það heldur.
Hvort er betra að fá sér Seríos eða Kornfleks í morgunmat?
Ég svara aðeins spurningum sem lagðar eru inn á þar til gerðan þráð. Ég kem ekki í húsvitjanir á aðra þræði til að svara.
Ég kem fúslega í húsvitjanir á aðra þræði en svara þar engu frekar en á mínum eigin.
Kannski er það kexað
kornflex...
Tek ég við mútum?
Og ef svarið er nei, er það þá það eina sem greinir mig frá öðrum Bagglýtingum?
Nú hef ég aldrei drepið skepnu stærri en hrossaflugu að yfirlögðu ráði. Eru þá líkur á að ég fái tilnefningu til friðarverðlauna þarna dínamitkallsins?
Nei.
42
42 hvað. Ertu að saka mig um heimsku?
Ég var bara að tryggja mig fyrir öllum framtíðar lögsóknum með því að svara í eitt skipti fyrir öll öllum þínum spurningum, og það rétt og skilmerkilega.
Hversvegna í andskotanum er alltaf þoka og rigning þegar maður ætlar að smala?Leggst grátandi á gólfið og lemur hnefanum máttleysilega í köflóttan dúkinn
Vlad er lamandi hræddur við sauðfé og vill helst hafa það á fjöllum til frambúðar - því brúkar hann veðurvélina á þennan hátt.
´Það er alltaf þoka og rigning hér, Því ætti að gera undantekningur þegar farið er að smala?
Hvar er þetta sauðfé sem hvæsir eiginlega upprunnið?
Hvæsir kannski meirihluti fjárstofnsins í landinu?
Ég hafði aldrey heyrt heyrt sauðkind hvæsa fyrir riðuniðurskurð á áttunda áratug síðustu aldar. Aldrey!
Lýkur kvöldbænum, signir sig og tölvuna og gengur til náða
Hjá mér varð sú breyting í vor að Baggalútur birtist ekki lengur á tölvuskjánum. Þess í stað sést hann stöku sinnum á baðstofuglugganum, einkum þegar rökkva tekur.
Kann einhver skýringu á þessu?Spýtir svo lítið ber á út í horn
Er eina leiðin til að losna við sívaxandi ágang hreindýra að stunda ómældan veiðiþjófnað?Heldur áfram að brýna spjót, axir og hnífa
Þú gætir nú líka reynt að setja pipar á girðingar og vegkanta.