Prinsaámskeiðið er ætlað drengjum sem hafa áhuga á heilbrigðu líferni, fágaðri framkomu og snyrtimennsku. Námskeiðið er ein vika, 4 tímar í senn. Markmiðið er að nemendur læri almenna kurteisi, snyrtimennsku, framkomu og öðlist aukið sjálfstraust og sjálfsöryggi. Hverju námskeiði lýkur með tískusýningu þar sem drengirnir koma fram. Þannig fá nemendur í yngri hópnum fræðslu um litafræði, hárgreiðslu og umhirðu, hand- og fótsnyrtingu, snyrtimennsku, göngu og líkamsburð, dans og borðsiði.
Eldri hópurinn lærir allt um litafræði, hárgreiðslu, húðsnyrtingu, fataskápinn og fatastíl, göngu og líkamsburð og dag- og kvöldförðun.
Nær í rútu og stingur Grágrím af á henni
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
finnur grindverk handa Grágrími
Er ég nokkuð of lífsreynd fyrir þetta prinsanámskeið?
Þig gæti vantað nokkur smáatriði til að komast á námsskeiðið. Td barkakýli og lim.
Er aldurstakmark? Ég verð 8 ára í sumar.
Skráir Hvæsa í prinsaskólann því hann hefur allt til alls, meir að segja frekar digran barka.
Það eru engar skráningartakmarkanir í prinsaskólann, því allir eru jafnir í Baggalútíu. Skráir Regínu
Ætli það sé ekki best að ég skrái mig - mér gengur aldrei neitt á daðurþræðinum, held að piltunum þyki ég svo ódönnuð. Þetta kannski hjálpar?
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Lítur út um gluggann á eftir blóðugu Það er engin týnd taska þarna, um hvað snýst málið?
Hvæsi heldur að það sé engin leið að siða mig til... snöktir Þó ég hræki á gólfið af og til og klæði mig eins og eitís lesbía, hvað með það?!
Ég veit ekki betur en að það hafi verið margreynt að kenna þér beisikk mannasiði, en ég er svosem að fíla soldið röff hegðun.
Hvæsi, þetta eru ekki neinir beisikk mannasiðir, þetta er um hárgreiðslu og förðun, framkomu, fataskápa, limaburð og eitthvað svoleiðis, akkúrat fyrir þig! Enda ertu tvískráður!
Ég veit það, en blóðugt er svo mikill ruddi að ég er einsog smástelpa við hliðiná henni. Þetta námskeið er fyrir miiiklu lengra komna en hana. Ég mun sitja þetta námskeið og taka glósur.