Oss hefir borist sú fregn, að gos hafi hafizt í eldfjalli nokkru í elztu nýlendu Baggalútíu. Bíðum vér frekari fregna af því, enda dveljum vér jafna í Baggalútíu sjálfri.
Þetta gæti tengst heimsendi og/eða prófunum vorum á nýju afbrigði af elipton. Vonandi kemur kóbalt og plútóníum upp í þessu gosi í stað verðlausrar ösku eins og í gosinu í fyrra.
Þetta gos er ekki neitt til að hafa áhyggjur af. Veðurvjelin hefur verið stillt á stöðugar NA og N-lægar áttir og því mun ekki vera ástæða fyrir okkur nýlendubúa til að óttast að verða fyrir ónæði af öskufalli. Vissulega hefur þessi ákvörðun Veðurfarsstofnunar Baggalútíska heimsveldisins það í för með sér að þeir sem búa norðan megin á eyjunni verða fyrir smá snjókomu, en þeir eru vanir því í öllum mánuðum ársins hvort eð er.
Hver var eiginlega að leika sér með gospillubirgðirnar?
kaupir gos og hraun á línuna.
Drekkur gos og hraunar svo yfir þráðinn
Verður öskuillur
Sér ekki til fjalla
Og mikið var ljúft, að losna við öskuna úr loftinu. Þessi drulla er hræðileg.