Er nokkur hætta á að hún breiðist út til skattlanda vorra í Afríku? Þurfum vér að auka hernaðarumsvif vor þar?
Ræðið.
Já. Nei. Kannski.
Áhyggjur yðar eru skiljanlegar en þó algjörlega óþarfar. Við munum að sjálfsögðu styðja báða aðila með vopnasölu og kynda vel undir á meðan byltingin stendur sem hæst. Er í ljós fer að koma hver muni verða næsti leiðtogi í viðkomandi landi, er hann studdur til valda með mildilegu harðræði, gegn árvissum skatttekjum. Einnig tryggjum við Baggalútíu ítök í helstu gróðafyrirtækjum viðkomandi landa og högnumst á öllu saman. Þannig að það er sama hver fer með völdin, Baggalútía græðir...
ég allavega læt ekki sjá mig þarna en sendi Jarma ef þetta er eitthvað mál.
Nauðsynlegt er að hafa í huga nauðsyn þess að að nauðsynjalausu minnki ei nauðsynleg áhrif baggalútíska heimsveldisins á svæði þessu með því að nauðsynlegum aðgerðum verði beitt til að tryggja að ekki verði neinn skortur á hættuleysi á því að aðilar sem ekki geta talist lausir við fjandsamleikaskort komist til einhverra áhrifa á svæði því er um ræðir; er besta leiðin að þessu marki hæfilegur skammtur af undirróðursstarfsemi, svo og vopnavald ef þurfa þykir.
Strákar, ég er búinn að týna endaþarmssvuntunni minni. Ég skyldi þó ekki hafa gleymt henni hjá einhverjum ykkar?
(gleymt lesist með rödduðum, norðlenskum framburði)
mér finnst þetta dónalegt af alkaiada að dópa liðiði til að fá menn á móti elskulegum höfðingja.
Er hún hjá þér, Ofsi?