Orðið nörd (á engilsaxnesku nerd) virðist komið til að vera. En orðið virðist til í öllum kynjum (eða næstum því) og alls konar beygingum. Það er náttúrulega ekkert ákveðið rétt hvað það varðar þar sem það á engar rætur í íslensku. Algengast var (fannst mér) í upphafi að það væri karlkynsorð og beygðist um það bil: nörd(-inn), nörd(-inn), nördi(-num), nörds(-ins).
Síðar fór að bera á beygingartilheygingunni: nörd(-inn), nörd(-inn), nirði(-num), njarðar(-ins).
Það leiðir svo líklega til þess að sumir nota orðið njörður fyrir þetta tiltekna fyrirbæri. Ættum við kannski að taka það upp alfarið og útrýma tökuorðinu? Þá þyrfti nú ekkert til að mynda að velta sér framar upp úr hvað er rétt og rangt í málfræðinni.
Finnst þetta afar aðlaðandi hugmynd
Síðustu ár hef ég séð aukna tilhneigingu til að hafa orðið í hvorugkyni: nörd(-ið), nörd(-ið), nördi(-nu), nörds(-ins). Persónulega finnst mér það hörmung og fæ hroll þegar ég sé það og heyri. Verð afar örg yfir að ekkert sé rétt í þessu efni.
Ég legg til að orðið njörður fái nýja merkingu til viðbótar þeim sem fyrir eru og verði tekið upp fyrir orðið nörd, sem yrði svo útrýmt úr málinu.
Til vara legg ég til að orðið verði karlkyns með "grænu" beygingunni (vona að það leiði til að orðið þróist sjálfkrafa til njarðar) og hvorugkyninu verði útrýmt... með góðu eða illu, mér er sama.
Ljómar upp
NÖRD = Nær öldungis ruglaður drengur
Gestapói nokkur, sem nú orðið er all fásénn en var fyrrum eins og grár köttur hér ber rafnefnið Nördinn. Ég man ekki betur en að Gestapóar flestir ef ekki allir hafi talað um Nördann og skemmt sér með Nördanum. Sem þýðir væntanlega að án greinis hefur nefnifallsmyndin verið Nördi.
Kannast hlustendur við það?
Já, ég er ekki frá því að ég hafi rekist á þá beygingu líka. Það var eitthvað að veltast í hausnum á mér í dag en tók ekki á sig mynd fyrr en þú nefnir það núna.
Mér finnst eins og það sé frekar yngra fólk sem hefur orðið í hvorugkyni. Hvort sem það er rétt eða ekki skil ég ekki af hverju nokkrum dettur í hug að hafa það hvorugkyns.
Reynir að skilja villuráfandi sauði
Kannski það sé því orðið endar oft á d?
Síðustu ár hef ég séð aukna tilhneigingu til að hafa orðið í hvorugkyni: nörd(-ið), nörd(-ið), nördi(-nu), nörds(-ins). Persónulega finnst mér það hörmung og fæ hroll þegar ég sé það og heyri. Verð afar örg yfir að ekkert sé rétt í þessu efni.
Ljómar upp
Veit Enter af þessum hneigðum yðar...?
Síðustu ár hef ég séð aukna tilhneigingu til að hafa orðið í hvorugkyni: nörd(-ið), nörd(-ið), nördi(-nu), nörds(-ins). Persónulega finnst mér það hörmung og fæ hroll þegar ég sé það og heyri. Verð afar örg yfir að ekkert sé rétt í þessu efni.
Ljómar upp
Veit Enter af þessum hneigðum yðar...?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég var einmitt að velta því fyrir mér þegar ég skrifaði þetta hvort ég ætti að taka fram að ég ætti ekki við forna merkingu orðsins argur, en ákvað að sleppa því. Einmitt vegna þess m.a. að áhugi Enters gæti vaknað.
Ég hef líka heyrt talað um að "Rækta nördið í sjálfum sér". Það gerir maður yfirleitt í Nexus. Vá hvað ég sakna þeirrar verslunar. Danskar nördabúðir eru glataðar. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Og nú er nexus skipt í tvennt, sér spilabúð þar sem spilasalurinn var áður, og spilasalurinn fluttur aðeins lengra.
Er Nörd nörd , nerdi eða Norðanmaður?
Eru til nerdar?
Eru Nördar óvinir ríkisins? [Leitar að óvinum ríkisins , fer í gamla skattholið , finn gamalt skinnhandrit frá 12. öld með lista yfir nokkurn nöfn Fríslendinga]