Það tilkynnist hér með opinberlega að ég hef ákveðið að yfirgefa Gestapó eftir rúm 5 ára stanslausa notkun.
Ég nenni ekki að hlusta á Úlla aftur
B.kv
Hvæsi.
Þetta þykja mér fremur sorgleg tíðindi. Ég vona samt að þú látir fljótlega af sjálfskipaðri útlegð....
Þiggur bauvaða bananatertu og sýpur á blút með
Þín verður sárt saknað, Hvæsi. Brestur í óstöðvandi grát Ég vona að þú snúir aftur einhvern tíma.
Hvæsi! Þú mátt alveg vinna! En þú vinnur ekki nema vera hér!
Uppsögn þín hefur verið móttekin, lesin og léttvæg fundin. Þín er vænst hér til vinnu kl: 07:00 í fyrramálið.
Fær sé Bauvtertu og bláan blút
En þú mátt alveg hætta tímabundið, síðdegis hvern sunnudag ef maður græðir ókeypis bananatertu á því.Ljómar upp
Alltaf sama dramað í þér, pestóhesturinn þinn! Láttekki svona, þú kemur alltaf aftur, erhaggi?
Þetta eru slæm tíðindi að undanskildu einu atriði: Nú getum vjer verið YFIRSIGURVEGARI um alla framtíð Ljómar upp og fer og tryggir sjer sigur
Íhugar að stefna Hvæsa fyrir landsdóm fyrir svik og eymingjaskap
Ekki hætta, fara Hvæsi.
Grátbiður Hvæsadillumeistarann að koma aftur til baka
Það þarf ekkert að opna alla hlekki. Grætur Hvæsa
Dramadrottning, svikari... og montrass.
Farðu í rassgat.
Sem er einmitt ágætis lýsing á hvar þú heldur til núna.
Sérkenniuleg tilviljun... Hvæsi hverfur en um svipað leiti birtist Sannleikurinn og þykist vera Úlvamaðurinn endurborinn. Þetta gæti verið djúphuxuð tilraun Hvæsa til að reyna að vera fyndinn eða bara leiðinda tilviljun.
Eigi teljum vér um tilviljun að ræða, enda þykjumst vér vissir um sannleiksgildi orða „Sannleikans“, að hann sé Úlfamaðurinn. Oss þykir það jafnvel undarlegt, að svo fáir hafi flúið. Hugsanlega er það til marks um baráttuvilja.
Mæddur og dapur ég dæsi
á Drottin ég heiti og æsi
og veina svo veldur mér hæsi:
vertu ekki að fara, ó Hvæsi!
Tekur heilshugar undir með Hlebba
Er ekki bara best að hunsa greyið? Þ.e.a.s. Úlla, ekki Hvæsa...