STAÐUR: STRÍÐSHERBERGIÐ
STUND: HERNAÐARLEYNDARMÁL
REGLUR: ENGAR KELLINGAR TAKK, OG EKKERT TYGGJÓ HELDUR! VINSAMLEGAST SLÖKKVIÐ LÍKA Á FARSÍMUM.
Sælir félagar. Ég sprengdi óvart smáríkið Andorra fyrir slysni bara núna í fyrradag. Fattaði það nú ekkert fyrr en núna bara rétt áðan þegar ég fékk símtal frá forseta Spánar sem var alveg sjóðbullandi illur. Þetta var svolítið hellað kvöld þannig að ég man svossem ekki mikið.
Allavega, þetta er svossem ekki í frásögur færandi nema það að spanjólinn er eins og ég segi foxillur yfir þessum eignaspjöllum eins og hann orðaði það og heimtar að við gefum þeim ný fjallakrútt í skaðabætur. Ferlega vandræðalegt mál allt saman.
Annars var ég nú bara að spá í að sprengja bara Spán en vandamálið við það er að það er bara svo gott að djamma og djúsa á Spáni, og ég vil nú ekki fara að eyðileggja þá stemmingu alla saman. Rimini er t.d. ekki svipur hjá sjón eftir að við sprengdum Ítalíu í klessu hérna um árið.
Geta þeir ekki bara fengið Verstfirðina? Vlad yfirkrútt getur örugglega, á einn eða annan hátt, sannfært Spanjólana um að Verstfirðir séu krúttlegir.
Já, Vestfirðirnir eru krúttlegir, það er rétt. Og Hornstrandir auðvitað þar krúttlegastar. En þar búa bara víst engin fjallakrútt lengur, svo ég viti. Hmmm... Starir þegjandi út í loftið
Láttu þá hafa vestfirði alveg niður í borgarfjörð.
Best væri ef hægt væri að sprengja þann hluta bara af landinu og draga suðureftir, Ljómar upp eða draga hinn helminginn suður og skilja vestfirðina eftir í kuldaloftslaginu og hinir fá spánarveður. Þessir spanjólar geta þá bara kennt okkur spánardjamm í baggalútíu í 30 stiga hita.
Hendir tyggjóinu Það er ekkert verra að djamma og djúsa á Ítalíu! Sprengjum Spán!
Sælir félagar. Ég sprengdi óvart smáríkið Andorra fyrir slysni bara núna í fyrradag. Fattaði það nú ekkert fyrr en núna bara rétt áðan þegar ég fékk símtal frá forseta Spánar sem var alveg sjóðbullandi illur.
Síðast er vjer vissum ríkti á Spáni konungur sá er Juan Carlos hjet og forsætisráðherra er Zapatero nefndist. Er Baggalútía búin að leggja undir sig Spán eða var gerð bylting þar ? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Eftir nánari umhugsun Líklega væri á allan hátt öruggast að leggja Spán (aftur ?) undir Baggalútíu hvert sem svarið við þessu er. Það gengur ekki að vafi ríki á hvort konungur eða forseti ríkir í stóru ríki á borð við Spán eða að vafi sje á hvort/hvaða ríki lagði viðkomandi ríki undir sig.
Ég allavega talaði við forsetann sem við nánari umhugsun kallaði sig Lúðvík Figo, sem við enn nánari umhugsun er Portúgali!
Bíddu bíddu, hvað hefur eiginlega gerst þarna?!
Hefur Portúgal lýst yfir stríði?
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Var Dúddi litli að lenda í Niggeríusvindlara sem kynnti sig sem spánarforseta ?
Ekki senda þeim meiri pening Dúddi minn.
Ég hef sem utanríkisráðherra sent forsvarmönnum Evrópusambandsins erindi með þeim gleðifréttum að dásamlegur dalur í Pýraneafjallgarðinum sé nú laus sem geymsla til frambúðar á hinu svokallaða Róma-fólki. Þetta er einstakt tækifæri þar sem það er eingöngu ein auðfær leið útúr þessum dal og landamæragæsla því leikur einn. Frakkar og aðrar hreinkynja og réttlætiselskandi Evrópuþjóðir geta því afhent þessum ófúsugestum lestarmiða aðra leið til hins nýstofnaða Ruslakistulýðveldis með loforði um smá gull og "græna" skóga.
Ljómar upp
Er búin að hafa samband við svartliða og þeir bíða viðbúnir.
Er ekki hægt að henda Vestmannaeyjum til þeirra? Þá losnar landinn við kvabbið og kvartið í Vestmannaeyjingum alltaf hreint. Verðum samt að vera vissir um að Árni Johnsen fari með!